Háir fasteignaskattar draga úr samkeppnishæfni
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um nýja greiningu SI um fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði þar sem kemur meðal annars fram að Samtök iðnaðarins áætli að fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði muni nema tæplega 39 milljörðum á næsta ári sem verði nær 7% hækkun á milli ára. Skýrist sú hækkun af hækkun fasteignamats og gangi hún eftir munu fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði verða 50% hærri að raunvirði á næsta ári en þeir voru fyrir 10 árum. Þá kemur fram í frétt Morgunblaðsins að greining samtakanna segi iðnaðarhúsnæði ríflega 39% atvinnuhúsnæðis í landinu ef miðað sé við fasteignamat. Þannig leggist fasteignaskattar þungt á iðnaðinn í landinu og þyngra en við sjáum í löndum í kringum okkur að sögn Ingólfs. „Það kemur niður á samkeppnishæfni okkar fyrirtækja gagnvart erlendum keppinautum og innlendri verðmætasköpun.“
Sveitarfélögin seilast enn dýpra í vasa fyrirtækja
Þá kemur fram í Morgunblaðinu að álagðir fasteignaskattar á íslensk fyrirtæki séu mjög háir í alþjóðlegum samanburði. Ingólfur segir skattlagninguna sem hlutfall af landsframleiðslu hafa hækkað, á síðustu tíu árum hafi hún aukist úr 0,7% í 0,8% sem merki um að sveitarfélögin séu að seilast enn dýpra í vasa fyrirtækja og í leiðinni almennings, þegar fjárhæðin sé skoðuð komi í ljós að hún hafi aukist allverulega og umfram verðbólgu sem þó hafi verið ærin á þessum tíma. Ingólfur segir í fréttinni að 50% hækkun sé auðvitað gríðarlega mikil hækkun sem svo endurspegli hækkun á húsnæðisverði, verði atvinnuhúsnæðis í þessu tilfelli. „Sveitarfélögin hafa því miður ekki séð ástæðu til að mæta því með því að lækka skattprósentuna sjálfa þótt slíkt sé sem betur fer ekki án undantekninga, það eru ákveðin sveitarfélög sem hafa lækkað.“
Nær önnur hver króna í vasa Reykjavíkurborgar
Einnig kemur fram í Morgunblaðinu að nær helmingur sveitarfélaga sé með skattlagningu atvinnuhúsnæðis í lögbundnu hámarki eða í 1,65% og að sveitarstjórnir nokkurra stærstu sveitarfélaganna hafi á síðustu árum mætt hækkun fasteignamats með lækkun álagningarprósentunnar. Samtök iðnaðarins telji framgöngu Kópavogs og Hafnarfjarðar til fyrirmyndar fyrir sveitarstjórnir annarra sveitarfélaga, ekki síst fyrir borgarstjórn Reykjavíkur sem hafi verið treg til að lækka þessar þungu álögur á fyrirtæki á svæðinu. Ingólfur segir í frétt Morgunblaðsins hátt nær aðra hverja krónu af þessari skattlagningu í landinu renna í vasa Reykjavíkurborgar, sem sé með álagningarprósentuna nálægt lögbundnu hámarki og hafi sett sér það markmið að vera með það þannig út kjörtímabilið nánast. „Þetta er náttúrulega mjög slæmt. Við höfum kallað eftir því að sveitarfélögin lækki álagningarprósentuna, það er mikilvægt að sú hækkun sem verður vegna þess að verð á atvinnuhúsnæði er á leiðinni upp á við sé jöfnuð út en sveitarfélögin sæti ekki lagi og auki skattlagninguna með því að halda skattprósentunni óbreyttri.“ Ingólfur hrósar þeim sveitarfélögum sem hafa mætt hækkun fasteignamats með lækkun álagningarprósentunnar en hnykkir á að eftir sitji stærsta sveitarfélagið.
Hvati fyrir sveitarfélög að takmarka lóðaframboð
Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að Samtök iðnaðarins telji reglur um útreikning fasteignaskatta afar óheppilegar hér á landi. Álagning fasteignaskatta sé beintengd við þróun fasteignamats, sem þróast í takti við mat HMS um þróun verðs atvinnuhúsnæðis. Í kerfinu felist hvati fyrir sveitarfélög til að takmarka lóðaframboð því þannig geti þau þrýst húsnæðisverði upp og aukið sínar tekjur af fasteignasköttum. „Þetta er óheppilegt því afleiðingarnar fyrir fyrirtækin og fyrir landsmenn eru aukin verðbólga, hærri vextir og aukin skattlagning,“ segir Ingólfur. Þegar Ingólfur er spurður hvort sveitarfélögin nýti þessa óheppilegu tengingu í eigin hag segir hann að ákveðin atriði bendi til þess, bagalegt sé að kerfi séu byggð upp með þessum hætti og það þurfi að endurskoða.
Morgunblaðið, 8. ágúst 2024.