Fréttasafn



26. ágú. 2026 Almennar fréttir Félag hársnyrtimeistara á Norðurlandi Menntun

Hársnyrtimeistarar á Norðurlandi leggja áherslu á öflugt nám

Nám, vinnustaðaþjálfun, réttindamál og aðgerðir gegn ólöglegri starfsemi voru meðal helstu umræðuefna á fundi Félags hársnyrtimeistara á Norðurlandi sem fór fram á Akureyri fyrir skömmu. Á fundinum var farið yfir stöðu náms í greininni og leiðir til að styrkja umgjörð vinnustaðanáms og undirbúning nema fyrir sveinspróf. Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá SI, segir að Samtök iðnaðarins leggi áherslu á gott samstarf atvinnulífs, skóla og faggreina við þróun iðn- og starfsnáms, þannig að nemendur séu vel undirbúnir fyrir sveinspróf og störf í greininni. Jafnframt sé mikilvægt að reglur á markaði séu virtar og að fyrirtæki búi við sanngjarna samkeppnisstöðu.

Mikilvægt að efla námið

Fundarmenn lögðu áherslu á að efla þurfi nám í hársnyrtiiðn og tryggja að nemendur fái nægilega verklega þjálfun til að öðlast þá hæfni og færni sem fagið krefst. Sérstaklega var rætt um hátt fallhlutfall í sveinsprófi og mikilvægi þess að greina ástæður þess og bregðast við. Meistarar gegna þar mikilvægu hlutverki með því að fylgja markvisst eftir þjálfun nema á vinnustað og tryggja að þeir fái tækifæri til að þjálfa þá verkþætti sem gerðar eru kröfur um á sveinsprófi.

Betri umgjörð um vinnustaðanám á Norðurlandi

Með komu nema í hársnyrtiiðn í vinnustaðanám á Norðurlandi er lögð áhersla á að þeir fái frá upphafi skýrar upplýsingar um markmið og fyrirkomulag námsins. Nemendur þurfa að vita hvaða verkþætti þeir eiga að þjálfa, hvaða tímakröfur eru gerðar til vinnustaðanámsins og hvaða hæfni og færni þeir þurfa að tileinka sér til að standast sveinspróf. Rætt var um að útbúa sérstakan upplýsingapakka fyrir nema í vinnustaðanámi þar sem markmið, tímakröfur, verkþættir og hæfnikröfur námsins verði sett fram með skýrum hætti. Slík umgjörð getur auðveldað nemendum að átta sig á því til hvers er ætlast af þeim og jafnframt stutt meistara við að skipuleggja og fylgja eftir þjálfun þeirra. Með þessu verði bæði nemendur og meistarar með skýrari og sameiginlega sýn á framvindu vinnustaðanámsins og þann undirbúning sem þarf fyrir sveinspróf.

Áhersla á réttindi og löglega starfsemi

Réttindamál voru einnig til umræðu á fundinum. Meistarar lögðu áherslu á mikilvægi þess að sporna gegn ólöglegri starfsemi í hársnyrtiiðn og tryggja að lögum og reglum um starfsréttindi sé fylgt. Öflug réttindagæsla skiptir máli fyrir greinina í heild, neytendavernd, bæði til að standa vörð um fagleg gæði og tryggja jafna samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja og fagfólks sem starfa í samræmi við gildandi reglur.

Fram undan er áframhaldandi stefnumótun meistara í hársnyrtiiðn á Norðurlandi þar sem nám, vinnustaðaþjálfun og réttindamál verða meðal lykilviðfangsefna. Öflugt starfsnám, markviss verkleg þjálfun, skýr hæfniviðmið og virk réttindagæsla eru mikilvæg fyrir framtíð hársnyrtiiðnar.