Fréttasafn



4. maí 2026 Almennar fréttir Mannvirki

Hátt vaxtastig stærsta áhyggjuefnið á byggingamarkaði

Þorsteinn Víglundsson, formaður SI, segir í fréttum RÚV að hægt hafi talsvert á byggingamarkaði og  samdráttur á húsnæðismarkaði sé áhyggjuefni sem samtökin hafi orðið vör við í auknum mæli síðustu vikur og mánuði. „Ég held að stærsta áhyggjuefnið sé auðvitað hversu hátt vaxtastigið er sem er farið að bíta verulega á fasteignamarkaði og er að hafa þá áhrif til nokkurrar sölutregðu á fasteignamarkaði og er að stuðla að því hversu hratt er að hægjast á núna í nýrri uppbyggingu.“ Hann segir mikilvægt að samstaða náist meðal fulltrúa vinnumarkaðarins um hvernig hægt sé að ná niður verðbólgu á komandi mánuðum og skapa svigrúm fyrir Seðlabankann til að lækka vexti. Þá gegni umræða um nýja þjóðarsátt og nýja endurskoðun kjarasamninga lykilhlutverki. „Ef að okkur tekst vel þar upp ætti staðan á þessum markaði að geta batnað nokkuð hratt, en ef við lendum í einhvers konar verðbólguspíral hér inn á næsta ár að þá gætum við verið í talsverðum vanda.“

Á vef RÚV er hægt að lesa fréttina í heild sinni.

RÚV, 4. maí 2026.