Fréttasafn



21. maí 2025 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki Starfsumhverfi

Hefði verið hægt að lækka vexti meira því háir raunvextir bíta

Hátt raunvaxtastig er að hafa sligandi áhrif á iðnað og hagkerfið í heild sinni segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, í frétt mbl.is en hann er ánægður með ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að lækka stýrivexti um 0,25% enda telji samtökin fullt tilefni til þess að halda vaxtalækkunarferlinu áfram. 

Ingólfur segir jafnframt á mbl.is að mjög lítill vöxtur sé í iðnaði þessa stundina og að ákveðin stöðnun sé að eiga sér stað. „Þessir háu raunvextir eru að bíta og hafa áhrif á iðnað eins og aðrar greinar hagkerfisins. Við þurfum að sjá frekar þróun í þá átt að verðbólga komi niður og þá vextir í leiðinni, við þurfum að koma okkur út úr þessari stöðu til að mynda grunn í að hagvöxtur taki við sér aftur.“ Hann segir jafnframt í fréttinni: „Við finnum fyrir þessu háa raunvaxtastigi og það sést í hagtölunum. Það er nánast stöðnun bæði í veltutölum og í fjölda þeirra sem starfa í iðnaðinum.“ Hann segir að iðnaðurinn vegi mjög þungt í efnahagsframvindunni.

Hægt að færa rök fyrir því að lækka vexti meira í ljósi stöðunnar

Þá kemur fram í frétt mbl.is að Ingólfur telji að hægt hefði verið að færa rök fyrir meiri lækkun en 0,25%. „Það er alltaf ákveðin óvissa og línudans hvar menn vilji hafa raunvaxtastigið. Peningastefnunefndin túlkar það sem svo að þetta sé hæfileg lækkun en það hefði alveg verið hægt að færa rök fyrir því að lækka vexti meira í ljósi stöðunnar.“ Hann segir að fyrstu viðbrögð samtakanna séu ánægja, sér í lagi í ljósi þess að ákvörðun peningastefnunefnd­ar var einróma í því að lækka vexti, sem sýni fram á einhug í þeirri vegferð að halda vaxtalækkunarferlinu áfram.

Langt í næstu vaxtaákvörðun en alltaf hægt að boða til aukafundar

Þegar Ingólfur er spurður að því á mbl.is hvort hann telji varhugavert hve langt sé í næstu vaxtaákvörðun sem er 20. ágúst telur hann svo vera en bendir þó á að ef eitthvað stórvægilegt gerist í millitíðinni þá sé alltaf hægt að boða til aukafundar hjá peningastefnunefnd.

mbl.is, 21. maí 2025.