Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum
Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum og aukið skilvirkni í heilbrigðisþjónustu hvort sem það er með notkun gervigreindar, annarra gagnalausna, fjarheilbrigðistækni eða nýrra samskiptaforma. Þetta segir Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, í grein á Vísi. Hún segir að heilbrigðiskerfið standi frammi fyrir djúpstæðum áskorunum að mörgu leyti, og birtist þær meðal annars í mannauðsskorti, síauknum þrýstingi á meira fjármagn og breyttum væntingum og kröfum almennings. En í miðju þessa umróts glitti líka í einstök tækifæri.Tækni, og þá sérstaklega heilbrigðistækni, geti átt ríkan þátt í að leysa þær stóru áskoranir sem heilbrigðiskerfið standi frammi fyrir. Hún segir mikilvægt að tæknilausnir séu þróaðar með þarfir notenda í fyrirrúmi og að þær mæti raunverulegum áskorunum innan kerfisins og að hið opinbera styðji við þróun þeirra með skýru regluverki og raunhæfum samningum.
Gæti orðið ein af mikilvægustu vaxtargreinunum en þarf skýra stefnumörkum stjórnvalda
Erla Tinna segir jafnframt í greinini að heilbrigðistækni sé í miklum vexti hér á landi og geti orðið ein af mikilvægustu vaxtargreinum til framtíðar hér á landi, ásamt því að auka hagræði í ríkisrekstri. Með markvissum aðgerðum, samstarfi við stjórnvöld og fjárfestingu í nýsköpun geti Ísland skapað sér sérstöðu sem sveigjanlegt þróunarumhverfi og þekkingarsamfélag á sviði heilbrigðistækni. Hún segir að til að nýta tækifærin til fulls þurfi að efla aðgengi að fjármagni og sérfræðiþekkingu, festa í sessi skattahvata til rannsókna og þróunar, tryggja áframhaldandi stuðning við nýsköpunarklasa og vísindagarða, og síðast en alls ekki síst; skýra stefnumörkun stjórnvalda í málefnum heilbrigðiskerfisins og hagnýtingar heilbrigðistæknilausna. Þá segir Erla Tinna að Samtök iðnaðarins muni áfram vinna að því að styðja við vöxt íslensks heilbrigðistækniiðnaðar, stuðla að bættu starfsumhverfi fyrir sprotafyrirtæki og tryggja að rödd greinarinnar heyrist við mótun stefnu í heilbrigðismálum og nýsköpun á Íslandi.
Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.
Vísir, 13. júní 2025.