Fréttasafn



13. jún. 2025 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun Samtök fyrirtækja í líf og heilbrigðistækni

Heilbrigðistækni sífellt stærri hluti heilbrigðiskerfisins

Helix sem er meðal aðildarfyrirtækja SI stóð fyrir fundi um heilbrigðistækni sem er að verða sífellt stærri hluti heilbrigðiskerfisins. Á fundinum sem fór fram í Hannesarholti var fjallað um árangur og framtíð heilbrigðistækni á Íslandi. Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, stýrði fundinum. Jón Magnús Kristjánsson, aðstoðarmaður heilbrigðismálaráðherra, flutti opnunarávarp. Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, sérfræðingur í vísindum og nýsköpun Fönn Consulting, fjallaði um stöðu, stefnu og stuðning við heilbrigðistækni á Íslandi. Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Nox Medical á Íslandi og COO Nox Health, sagði frá leiðandi heilbrigðistækni Nox í Bandaríkjunum og Nox Medical tækni sem umbreytir greiningu svefnsjúkdóma til framtíðar. Kjartan Þórsson, stofnandi Prescriby, greindi frá því að það væri ekki nóg að skapa lausnina, koma þurfi nýsköpun í heilbrigðiskerfinu í notkun. Einar Geirsson, forstöðumaður nýsköpunar hjá Helix, fjallaði um tímabókanir í heilbrigðiskerfinu.

Á vef Viðskiptablaðsins er hægt að nálgast fleiri myndir frá viðburðinum.

Myndir/Hulda Margrét

_G8A1654Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI. 

_46A4859Jón Magnús Kristjánsson, aðstoðarmaður heilbrigðismálaráðherra.

_46A4948Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, sérfræðingur í vísindum og nýsköpun Fönn Consulting.

_G8A1623Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix. 

_G8A1641Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Nox Medical á Íslandi og COO Nox Health.

_G8A1673Kjartan Þórsson, stofnandi Prescriby.

_G8A1733

_46A4994

_G8A1858

_G8A1879

_G8A1891

_G8A1923

_G8A1927

_G8A1974

_G8A2011

_G8A2065

_G8A2075

_G8A2090

_G8A2098