Heilt yfir er hagkerfið að kólna
„Þessar nýjustu vendingar bæta gráu ofan á svart. Óvissan hefur verið mjög mikil undanfarin misseri. Þetta setur plan allra á markaðnum úr skorðum. Hvort sem það er almenningur sem er að reyna kaupa sér íbúðir eða verktakar sem byggja íbúðir og selja,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í frétt Sýnar um stöðuna í byggingariðnaði í kjölfar dóms Hæstarréttar um húsnæðislán. Hann segir öll merki kólnunar vera til staðar á markaðnum og hljóðið sé þungt í aðilum í byggingargeiranum. „Ef við horfum á tölur frá Hagstofunni þá sjáum við það að launþegum er að fækka í greininni. Það er að draga heldur úr veltu. Við getum orðað það þannig að þetta er röð atvika sem koma saman. Sveitarfélög hafa stórhækkað gjaldskrár. Það kemur illa við iðnaðinn og háir vextir einnig. Heilt yfir er hagkerfið að kólna.“
Vandinn er að breytingin mun sennilega ekki skila miklu
Sigurður segir einnig í frétt Sýnar að það sé með öllu ótækt að bíða eftir dómum til að leysa óvissuna. „Hver dagur í þessu ástandi telur, mjög mikið. Því fyrr sem höggvið er á hnútinn því betra. “ Hann fagnar væntanlegum vaxtaviðmiðum ríkisstjórnarinnar fyrir verðtryggð lán. „Við bíðum bara eins og allir aðrir eftir nákvæmri útfærslu á því. Hvað varðar Seðlabankann þá fögnuðum við breytingum á föstudaginn varðandi lánþegaskilyrði. Vandinn er samt sá að þessi breyting mun sennilega ekki skila miklu. Þarna er verið að rýmka aðeins svigrúm, svigrúm sem hefur ekki verið fullnýtt hingað til. Það mun sennilega ekki breyta neinu.“
Seðlabankinn mætti ganga enn lengra
Þá kemur fram í fréttinni að það sé mat Sigurðar að Seðlabankinn mætti ganga enn lengra, það sé löngu tímabært að endurmeta reglur er varða greiðslubyrði lánþega, sérstaklega í ljósi stöðunnar. „Þar sýnist okkur vera fullt tilefni til að slaka á. Það er mjög skrítið að fólk komist ekki inn á húsnæðismarkaðinn. Fólk sem er kannski að greiða háar fjárhæðir í leigu á mánuði. En greiðslumatið miðað við Seðlabankann leyfir fólki ekki að greiða lægri afborganir af láni heldur en af leigu. Þetta er ástand sem við getum ekki búið við til lengdar.“ Hann segir að þetta gæti skipt sköpum bæði fyrir byggingariðnaðinn. „Síðast en ekki síst myndi þetta skipta sköpum fyrir almenning í landinu sem er að reyna komast inn á markaðinn.“
Vísir/Sýn, 2. nóvember 2025.

