Heimsókn í Nóa Siríus
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri matvælaframleiðslu á iðnaðar- og hugverkasviði SI, heimsóttu Nóa Siríus fyrr í vikunni. Framkvæmdastjórn Nóa Siríus tók á móti fulltrúum SI og lóðsuðu í gegnum aðstöðu fyrirtækisins, sem hefur verið í nokkurri yfirhalningu að undanförnu.
Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Siríus, ásamt Önnu Fríðu Gísladóttur, framkvæmdastjóra markaðssviðs, sýndu og kynntu svo framleiðslu fyrirtækisins undir dyggri handleiðslu Haraldar Lúðvíkssonar, framkvæmdastjóra framleiðslusviðs.
Nói Siríus stendur í ströngu þessa dagana við að framleiða páskaegg sem koma til með að gleðja unga sem aldna á næstu misserum, en þau eru auðvitað fyrir löngu orðin órjúfanleg hefð á öllum heimilum yfir páskahátíðarnar. Til að anna eftirspurn vill framkvæmdastjóri framleiðslusviðs helst ekki byrja páskaeggjaverktíðina seinna en í nóvember og stendur hún alveg fram að páskum ár hvert. Framleiðslan er einstök á heimsvísu og handtökin á bakvið hvert og eitt egg eru eflaust fleiri en nokkurn gæti grunað.
Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, Anna Fríða Gísladóttir, Haraldur Lúðvíksson, Sigurður Hannesson og Sigurður Helgi Birgisson,




