Heimsóknir í fyrirtæki í mannvirkjaiðnaði á Austurlandi
Í tengslum við fund sem Samtök iðnaðarins stóðu fyrir á Austurlandi fyrir mannvirkjafyrirtæki fóru fulltrúar SI í heimsóknir til nokkurra fyrirtækja, meðal þeirra voru MVA í Fellabæ, Nestak á Neskaupsstað og Launafl á Reyðarfirði.
Á fundinum sem haldinn var í Gistihúsinu á Egilsstöðum tóku Kristján D. Sigurbergsson og Þorgils Helgason viðskiptastjórar á mannvirkjasviði SI fyrir ýmis mál sem brenna á félagsmönnum sviðsins til dæmis aukna gjaldheimtu sveitarfélaga af uppbyggingu á sama tíma og stjórnvöld kalla eftir auknum krafti í uppbyggingu á hagstæðu húsnæði. Eins var tekin fyrir ítrekun Meistaradeildar SI til fjármálaráðuneytisins að hækka aftur endurgreiðslu vsk af vinnu iðnaðarmanna en sú lækkun sem var gerð fyrirvaralaust 1. júlí 2023 hefur skilað sér í verri heimtum fyrir ríkissjóð og ýtt undir svarta atvinnustarfsemi.
Heimsókn til MVA í Fellabæ, Jón Arnórsson og Þorgils Helgason.
Heimsókn til Nestaks á Neskaupsstað, talið frá vinstri, Kristján D. Sigurbergsson, Andri Snær Sigurjónsson, Björgvin Mar Eyþórsson, Laufey Sigurðardóttir, Skúli Vilhjálmsson, Eiríkur Simonsen, Ari Benediktsson og Þorgils Helgason.
Heimsókn í Launafl á Reyðarfirði, talið frá vinstri, Ragnheiður
Ingibjörg Elmarsdóttir, Agla Heiður Hauksdóttir, Magnús Helgason, Sigurður Örn Sigurðsson og Kristján D.
Sigurbergsson.

