Hið opinbera fari úr framsætinu í aftursætið í launaþróun
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir í umfjöllun Viðskiptablaðsins að skýr merki séu um kólnun á vinnumarkaði hvað viðkemur iðnaði.„Á undanförnum tólf mánuðum hefur starfsmönnum fækkað í helstu undirgreinum iðnaðar, byggingariðnaði, framleiðsluiðnaði og hugverkaiðnaði. Þetta höfum við ekki séð síðan á tímum heimsfaraldurs. Atvinnuleysi hefur einnig aukist jafnt og þétt undanfarna mánuði og þar að auki eru færri laus störf þannig að fyrirtækin halda aftur af ráðningum. Þessir þrír mælikvarðar benda því allir til kólnunar á vinnumarkaði og kólnunar í efnahagslífinu.“
Þá tekur Sigurður heilshugsar undir með seðlabankastjóra varðandi stöðuna á vinnumarkaði. „Það er löngu tímabært að ráðast í víðtækar umbætur á vinnumarkaðslíkaninu og hið opinbera, ríki og sveitarfélög, verða að færa sig úr framsætinu yfir í aftursætið í launaþróun. Til þess að gera þetta þarf samhljóm og það hlýtur að vera forgangsverkefni stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins næstu misserin að finna samhljóminn.“
Viðskiptablaðið, 18. febrúar 2026.

