Fréttasafn



3. mar. 2026 Almennar fréttir

Hindranir sem þarf að ryðja úr vegi

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, ræðir í Bítinu á Bylgjunni um stöðuna í þjóðfélaginu, hugverkaiðnað og Iðnþing sem er framundan. Hann segir að sem betur fer séu ýmsar góðar fréttir hjá okkur. „Við sáum til dæmis frétt í síðustu viku um það að Kerecis er að greiða 40 milljarða í ríkissjóð, skattgreiðslu, út af tilfærslu hugverkaréttinda. Þó það sé auðvitað leiðinlegt að sjá þessi réttindi fara úr landi að þá er það mjög jákvætt fyrir ríkissjóð að fá þessa fjármuni og veitir nú ekki af á þessum tímum. Þar fyrir utan er þetta líka áminning um þau verðmæti sem hafa orðið til í öllum þessum fyrirtækjum. Þarna er verðmiði á hugverkaréttindum í einu fyrirtæki.“

Sigurður segir að það séu mörg vænleg fyrirtæki og hugverkaiðnaðurinn sé orðin raunveruleg útflutningsstoð. „Það er áhugavert til þess að hugsa að fyrir aldarfjórðungi eða í byrjun aldarinnar þegar Kárahnjúkavirkjun var í byggingu þá voru margir sem sögðu að við ættum frekar að gera eitthvað annað, en svo komu aldrei svör við því hvað það ætti að vera. En núna er þetta eitthvað annað orðið mjög stórt.“ Hann segist sjá merki þess að þetta muni áfram gerast. „Það eru mörg vænleg fyrirtæki og verðmæt störf sem hafa orðið til og frumkvöðlar sem hafa fylgt eftir hugmyndum sínum. Fyrirtækjunum fjölgar.“

Þá segir Sigurður að það jákvæða við hugverkaiðnað sé að hann reiðir sig ekki á auðlindir aðrar en bara mannauð, orku kannski að einhverju leyti en fyrst og fremst á fólk. „Þar erum við ágætlega í stakk búin.“ Þegar talið berst að því að stjórnvöld þurfi að veðja á þennan iðnað segir hann að þau hafi gert það á síðustu árum. „Ég veit að það er mikill vilji en það eru örfáar hindranir sem þarf að ryðja úr vegi en heilt yfir hefur gengið ótrúlega vel á þessu sviði.“ Hann nefnir að það felist helst í regluverkinu en að það sé mikill vilji til að bæta úr því.

Hér er hægt að nálgast viðtalið við Sigurð í heild sinni.

Bítið á Bylgjunni, 3. mars 2026.