Fréttasafn



8. sep. 2025 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

HMS tryggir aðgengi íslenskra gluggaframleiðenda að prófunum

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, er meðvituð um mikilvægi þess að vinna gegn gullhúðun regluverks og hefur það að leiðarljósi í öllum sínum störfum. Stofnunin tekur heils hugar undir þá gagnrýni sem sett var fram í Kastljósi af hálfu innlendra gluggaframleiðenda sem ekki hafa aðgengi að faggiltri prófunarstofu. Sú staða hefur gert það að verkum að samkeppnisstaða þeirra gagnvart erlendum framleiðendum er verri fyrir vikið. Það er ekki ásættanlegt. Þetta kemur fram í tilkynningu HMS. Þá kemur fram að HMS hyggist tryggja aðgengi íslenskra gluggaframleiðenda að faggiltum prófunum þegar á þessu ári. Núverandi gluggaprófunarbúnaður sem staðsettur er hjá Tæknisetri þarfnist uppfærslu en gert er ráð fyrir að verja hátt í 10 milljónum króna í að uppfæra hann. HMS hafi gert samkomulag við Tæknisetur um að stofnunin taki þátt í fjármögnun vegna þess kostnaðar og muni HMS inna fyrstu greiðslu af hendi síðar í þessum mánuði. 

Gluggar smíðaðir í friðuð hús undanþegnir CE-merkingu

Það kemur fram í tilkynningunni að HMS hafi enn fremur að höfðu samráði við Minjastofnun unnið tillögu að breytingum á byggingarreglugerð sem feli í sér að gluggar sem smíðaðir eru í friðuð og friðlýst hús hér á landi verði undanþegnir frá CE-merkingu. Jafnframt segir að við lokun NMÍ hafi verið stefnt að því að byggingarvörur skyldu prófaðar af faggiltum prófunarstofum, helst á einkamarkaði, eins og þekkist hjá nágrannaríkjum okkar. Þegar ljóst hafi verið að einkamarkaðurinn hefði ekki áhuga á að taka þetta hlutverk að sér, hafi HMS frumkvæði að því, í samstarfi við Tæknisetur, að vinna að því að faggiltar gluggaprófanir gætu átt sér stað hér á landi. Það sé nú loksins komið í góðan farveg.

Sölubanni á erlenda glugga beitt

Þá er tekið fram í tilkynningunni að enginn íslenskur gluggaframleiðandi hafi verið beittur viðurlögum af hálfu HMS í því frumkvæðiseftirliti sem nú standi yfir. Öðru gegni hins vegar um erlenda glugga þar sem sölubanni hafi verið beitt í 11 skipti á tveimur árum og nokkrir gluggar sem reynt hafi verið að flytja inn en töldust ófullnægjandi fyrir íslenskar aðstæðar hafi í kjölfar skoðunar HMS verið teknir af markaði. Síðan HMS hóf frumkvæðiseftirlit með innfluttum gluggum í byrjun árs 2024 hafi alls verið gefin út 64 tilmæli um úrbætur enda séu gluggar eitt helsta vandamálið í alvarlegum gallamálum hér á landi.

Á vef HMS er hægt að nálgast frekari upplýsingar.