Húsnæðismarkaður í vítahring
Við höfum auðvitað talað fyrir því að við erum komin inn í vítahring. Við vitum að það er undirliggjandi eftirspurn og það er mikil þörf á húsnæði og þegar vextir fara aftur að lækka og kaupgeta fólks fer að aukast á ný að þá er ef til vill ekki til nægilega mikið af íbúðum til að mæta þeirri eftirspurn. Þetta segir Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, í kvöldfréttum Sýnar. Í fréttinni kemur fram að íbúðauppbygging á landsvísu hafi dregist saman um þriðjung frá árinu 2023 og atvinnuleysi hafi aukist í byggingargeiranum. Árið 2023 hafi 9.000 íbúðir verið í byggingu en nú árið 2026 séu 6.000 íbúðir í byggingu. Samdrátturinn nemi 33% og hafi því orðið veruleg kólnun í byggingargeiranum.
Þarf að gera betur
Jóhanna Klara segir jafnframt: „Við höfum líka gagnrýnt það að gjaldtökur sveitarfélaganna hefur verið að hækka gríðarlega þegar kemur að húsnæðisuppbyggingu og það þarf að endurskoða þær gjaldtökuheimildir. Svo er bara margt í starfsumhverfinu líka tengt bara lóðum og aðgengi að lóðum og og skipulagsmál sem þarf að bæta.“ Hún segir að það séu samtöl að eiga sér stað. „Það er auðvitað vilji og það er skilningur á alvarleika málsins. En það þarf að gera betur.“
Hér er hægt að nálgast fréttina frá mín. 5:05.
Sýn, 16. mars 2026.

