Húsnæðispakkinn tekur ekki á þeim vanda sem er á markaðnum
Það er margt jákvætt og markmiðin eru góð en þetta tekur hins vegar ekki á þeim vanda sem uppi er á markaðnum segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í Bítinu á Bylgjunni um annan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar. Hann segir að það hafi orðið vatnaskil á byggingamarkaðinum, atvinnuleysi er að aukist, velt er heldur að dragast saman og fleiri merki sem benda til kólnunar.
Þá segir Sigurður að grunnvandamálið sé það að það sé of flókið, tímafrekt og dýrt að byggja íbúðir við þessar aðstæður og þá sé alveg sama hvort ríkið ætlar að byggja þessar íbúðir eða einkaaðilar. Hann segir að grunnvandinn sé sá að það þurfi að stórauka framboð lóða og að það þurfi að breyta áherslum í skipulagsmálum.
Sigurður segir frá því að gerð hafi verið könnun þar sem almenningur hafi verið spurður að því hvernig íbúðir fólk vildi helst. Þá komi í ljós að áherslur sveitarfélaganna séu allt aðrar heldur en áherslur borgaranna í landinu. Fólk vilji öðruvísi íbúðir heldur en skipulagið heimilar. Hann segir að sveitarfélögin fari með skipulagsvaldið, þau ráði því hvar sé byggt og hvenær þannig að þeirra kröfur geri ráð fyrir íbúðum sem henti ekki markaðnum.
Hér er hægt að hlusta á viðtalið við Sigurð í heild sinni.
Bítið á Bylgjunni 29. apríl 2026.

