Fréttasafn



19. apr. 2023 Almennar fréttir Menntun

Hvatningarsjóður Kviku hefur opnað fyrir umsóknir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Hvatningarsjóði Kviku en sjóðurinn hefur það hlutverk að hvetja og styrkja ungt fólk til iðn- og kennaranáms. Öll þau sem hafa þegar hafið, eða hyggjast hefja á komandi vetri, nám í löggiltum iðngreinum eða kennaranámi geta sótt um styrk. Umsóknarfrestur er til 1. maí.

Markmið Hvatningarsjóðs Kviku er að efla umræðu og vitund um mikilvægi iðn- og kennaranáms og þýðingu starfa sem því tengjast fyrir íslenskt atvinnulíf en skortur er á iðn- og kennaramenntuðu starfsfólki og er sá skortur víða orðinn hamlandi fyrir starfsemi fyrirtækja og skóla.

Hvatningarsjóður Kviku var stofnaður árið 2020 og tekur við af Hvatningarsjóði iðnnema, stofnaður 2018 og Hvatningarsjóði kennaranema, stofnaður árið 2019. Samstarfsaðilar Kviku í Hvatningarsjóðnum eru Samtök iðnaðarins og mennta- og menningarmálaráðuneytið. Sjóðurinn veitir styrki fyrir allt að 10 milljónum króna árlega, en miðað er við að einstaka styrkir séu frá 500.000 til 1.000.000 króna.

Hér er hægt að nálgast frekari upplýsingar um sjóðinn.