Hverju ætla frambjóðendur í þínu sveitarfélagi að breyta?
Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga sem fram fara 16. maí vekja Samtök iðnaðarins athygli á þeim þremur málefnum sem helst hafa áhrif á samkeppnishæfni Íslands á sveitarstjórnarstiginu. Sveitarfélögin standa frammi fyrir stórum ákvörðunum um uppbyggingu og viðhald innviða, þau bera ábyrgð á að mæta húsnæðisþörfum íbúa og ráða miklu um hvernig búið er að atvinnustarfsemi. Samtök iðnaðarins hafa tekið saman helstu staðreyndir um innviði, húsnæði og starfsumhverfi auk þess að leggja fram umbótatillögur sem eru mikilvægar til að efla samkeppnishæfni Íslands. Þau sem setjast í sveitarstjórnir að kosningum loknum geta með stefnu og aðgerðum valið að liðka fyrir framþróun og uppbyggingu eða tafið fyrir.
Því hvetja Samtök iðnaðarins kjósendur til að spyrja frambjóðendur hverju þau ætla að breyta til að tryggja uppbyggingu og viðhald nauðsynlegra innviða, til að tryggja húsnæðisframboð sem mætir þörfum íbúanna og tryggja skilvirkt starfsumhverfi og aukna verðmætasköpun.
Á þessari vefsíðu birta Samtök iðnaðarins helstu staðreyndir sem snúa að innviðum, húsnæði og starfsumhverfi auk þess sem samtökin leggja fram úrbótatillögur:
Sveitarstjórnarkosningar 2026 | Samtök iðnaðarins - íslenskur iðnaður
Hér fyrir neðan er hægt að nálgast samfélagsmiðlaefni samtakanna sem tengist málefnunum þremur:
Innviðir
https://vimeo.com/1189437755Húsnæði

