Fréttasafn



27. feb. 2026 Almennar fréttir Félag hársnyrtimeistara á Norðurlandi Iðnaður og hugverk Meistarafélag hársnyrtimeistara og -sveina í Reykjavík

Hvetja neytendur til að velja löggilta fagaðila í hársnyrtiiðn

Flest okkar telja sjálfsagt að ganga að því sem vísu að þegar við setjumst í stólinn hjá hársnyrti að manneskjan sem heldur á skærunum eða meðhöndlar sterk efni nálægt húð okkar og augum sé löggiltur fagmaður með tilskilin réttindi. Því miður er raunin sú að sífellt oftar er boðið upp á þjónustu sem hvorki stenst lög né faglegar kröfur, og í slíkum tilfellum bera neytendur alla áhættuna. Þetta segja þær Margrét Ósk Brynjólfsdóttir, formaður Félags hársnyrtimeistara og -sveina í Reykjavík, og Sigríður Valdís Bergvinsdóttir, formaður Félags hársnyrtimeistara á Norðurlandi, í grein á Vísi með yfirskriftinni Veist þú hver heldur á skærunum eða litar á þér hárið?

Þær segja að hársnyrtiiðn sé löggilt iðngrein á Íslandi og það sé engin tilviljun. Til að öðlast réttindi þurfi að ljúka formlegu námi, sveinsprófi og meistararskóla vilji viðkomandi reka hárgreiðslustofu. Þessar kröfur séu ekki settar fram til að útiloka, heldur til að tryggja gæði, öryggi og neytendavernd. Margrét Ósk og Sigríður Valdís segja það áhyggjuefni að í auknum mæli hafi afmarkað erlent nám, sem nær einungis til tiltekinna verkþátta á borð við rakstur eða hárblástur og stendur jafnvel aðeins yfir í 8–12 vikur, verið metið til jafns við heildstæða fagmenntun í löggiltri hársnyrtiiðn á Íslandi. Þær segja að slík nálgun samræmist ekki þeirri víðtæku þekkingu sem íslenskt iðnnám byggi á, þar sem lögð sé áhersla á anatómíu, efnafræði, húð- og hársjúkdóma, hreinlæti og neytendavernd. Ef gerðar séu minni kröfur við mat á erlendu námi en gilda um innlenda menntun sé hætta á að grafið sé undan bæði faglegum gæðum greinarinnar og öryggi neytenda.

Í niðurlagi greinarinnar hvetja þær neytendur til að vera vakandi, spyrja um réttindi og velja löggilta fagaðila. Með því sé stutt við fagmennsku og eigið öryggi.

Hér er hægt að lesa grein þeirra 

Vísir, 25. febrúar 2026.