Fréttasafn



20. apr. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Meistarafélag Suðurlands

Íbúðaruppbygging kynnt á aðalfundi Meistarafélags Suðurlands

Meistarafélag Suðurlands hélt aðalfund félagsins á dögunum á Hótel Selfossi. Þar fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf og var stjórn endurkjörin en í henni sitja Valdimar Bjarnason formaður, Sigurður Sigurjónsson varaformaður, Valur Örn Gíslason gjaldkeri, Stefán Helgason ritari, Baldur Pálsson meðstjórnandi, og Hjálmar F. Valdimarsson meðstjórnandi.

Eftir að aðalfundarstörfum lauk flutti Haraldur Þór Jónsson sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps erindi um metnaðarfulla íbúðaruppbyggingu í sveitarfélaginu í takt við aukna atvinnumöguleika meðal annars í tengslum við Fjallaböðin.

IMG_3100

IMG_3102

IMG_3104