Fréttasafn



25. feb. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki Starfsumhverfi

Iðnaðurinn mikilvægur fyrir skatttekjur ríkisins

Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Viðskiptablaðinu um nýja greiningu SI og Reykjavík Economics um skattspor iðnaðarins þar sem hann segir meðal annars að tölurnar sem þar komi fram undirstriki mikilvægi iðnaðarins fyrir skatttekjur ríkisins og endurspegli jafnframt umfang hans í hagkerfinu. Í greiningunni kemur fram að skattspor iðnaðarins nemi 564 milljörðum króna og sé stærst útflutningsgreina. Hann bendir á að verðmætasköpun greinarinnar hafi numið 900 milljörðum króna árið 2024, sem sé um fjórðungur landsframleiðslunnar það ár. Þá hafi að jafnaði 52 þúsund manns starfað í greininni, eða einn af hverjum fjórum á innlendum vinnumarkaði. Iðnaðurinn sé jafnframt stærsta útflutningsgrein þjóðarbúsins og aflaði 750 milljarða króna í útflutningstekjur árið 2024, sem jafngildir 39% af heildarútflutningstekjum hagkerfisins á því ári. Að auki hafi greinin veruleg jákvæð áhrif á aðrar atvinnugreinar. 

Há skattlagning veikir samkeppnishæfni íslenskra iðnfyrirtækja

Ingólfur segir í Viðskiptablaðinu að þrátt fyrir að fyrrgreindar tölur sem varpi ljósi á mikilvægi iðnaðarins fyrir íslenskt samfélag séu í grunninn jákvæðar endurspegli þær þó einnig hve þung skattbyrði hvílir á fyrirtækjum í iðnaði. „Því miður er ríki og sveitarfélög sífellt að seilast lengra í skattlagningu og gjaldtöku. Þó að fyrirtæki í iðnaði vilji að sjálfsögðu skila sínu til samfélagsins þá eru takmörk fyrir því hversu langt er hægt að ganga ef hámarka á verðmætasköpun í hagkerfinu. Ísland er meðal þeirra ríkja á alþjóðavísu þar sem skattlagning er hvað hæst.“ Hann bendir á að há skattlagning veiki samkeppnishæfni íslenskra iðnfyrirtækja sem mörg hver eiga í harðri samkeppni við erlend fyrirtæki, þar sem skattlagning er í flestum tilfellum ekki jafn íþyngjandi. „Því meira sem íslensku fyrirtækin greiða í skatta, þeim mun minna situr eftir til fjárfestinga og nýsköpunar – sem eru lykilþættir til að stuðla að frekari verðmætasköpun til framtíðar og leggja grunn að samkeppnishæfni ásamt öðrum þáttum.“

Viðskiptablaðið / vb.is, 25. febrúar 2026.

Vidskiptabladid-25-02-2026_1