Iðnaðurinn stendur undir stórum hluta lífskjara landsmanna
Skattspor iðnaðarins – þ.e. framlag iðnaðar til samfélagsins í formi skattgreiðslna – er mjög umfangsmikið og endurspeglar mikilvægi greinarinnar í hagkerfinu segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, í grein sinni í ViðskiptaMogganum sem ber yfirskriftina Iðnaður grundvöllur lífsgæða. Hann segir að heildarskattspor iðnaðar hafi numið 464 milljörðum króna árið 2023 samkvæmt nýlegri skýrslu sem Reykjavík Economics vann fyrir Samtök iðnaðarins. Til samanburðar námu útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála 354 milljörðum króna árið 2023 og til menntamála 250 milljörðum króna. Ingólfur segir að þetta sýni að iðnaðurinn standi undir stórum hluta af starfsemi hins opinbera og að skattspor iðnaðarins sé stærst allra útflutningsgreina. Þröngt skattspor greinarinnar (án virðisaukaskatts) hafi numið 220 milljörðum og til samanburðar hafi þröngt skattspor ferðaþjónustunnar numið 107 milljörðum og sjávarútvegsins 89 milljörðum sama ár.
Iðnaðurinn skilar verðmætum með ýmsum hætti
Ingólfur segir að iðnaðurinn skili verðmætum inn í íslenskt samfélag með ýmsum hætti. Stórt skattspor iðnaðarins sé einn þáttur þess og endurspegli mikið umfang greinarinnar hér á landi. Verðmætasköpun greinarinnar hafi numið 900 milljörðum króna í fyrra, sem sé um fjórðungur landsframleiðslunnar. Í greininni starfi 52 þúsund manns, eða einn af hverjum fjórum á innlendum vinnumarkaði, og stór hluti skattsporsins séu vinnuaflstengdir skattar. Þá segir hann að iðnaðurinn sé jafnframt stærsta útflutningsgrein þjóðarbúsins og hafi aflað 750 milljarða króna í útflutningstekjur í fyrra, sem jafngildi 39% af heildarútflutningstekjum. Að auki hafi greinin veruleg jákvæð áhrif á aðrar atvinnugreinar. Ljóst sé því að iðnaðurinn standi bæði undir stórum hluta lífskjara landsmanna og sé skattspor greinarinnar bara einn þáttur þess.
Endurspeglar háa skattbyrði á íslensk fyrirtæki
Þá segir Ingólfur að þrátt fyrir að skattspor iðnaðarins sé mikið endurspegli það einnig háa skattbyrði á íslensk fyrirtæki. Ísland sé háskattaríki í alþjóðlegum samanburði, þar sem skatttekjur hins opinbera hafi numið 32% af landsframleiðslu árið 2022 – sem sé mjög hátt í samanburði við önnur OECD-ríki. Hann segir að skattar og gjöld á íslensk fyrirtæki séu margþætt og margar álögur teljist mjög íþyngjandi fyrir atvinnulífið. Samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem nú sé til umfjöllunar á Alþingi sé gert ráð fyrir að skatttekjur hækki í 34% af landsframleiðslu á til ársins 2027. Slíkur skattþungi dragi úr fjárfestingu og framleiðnivexti. Ingólfur segir að háir skattar geti grafið undan verðmætasköpun, dregið úr atvinnu og þar með rýrt skattstofna og tekjur hins opinbera.
Rétt leið að efla samkeppnishæfni og framleiðni
Ingólfur segir í greininni að Samtök iðnaðarins telji að skattahækkanir sem vinni gegn virkni og samkeppnishæfni atvinnulífsins séu ekki í samræmi við sjálfbærni í opinberum fjármálum til lengri tíma. Samtök iðnaðarins hafi lagt á það áherslu að rétt leið að sjálfbærni og stöðugleika í opinberum fjármálum sé að efla samkeppnishæfni og framleiðni í hagkerfinu. Hann segir að með því að styðja við framleiðniaukningu megi skapa sterkari tekjugrundvöll fyrir hið opinbera og bæta lífskjör landsmanna. Þeir þættir sem mestu skipti í þessu samhengi séu samkeppnishæft starfsumhverfi, mannauður og menntun – einkum í iðn- og STEAM-greinum, umgjörð nýsköpunar, næg nýfjárfesting og viðhald í innviðum, sérstaklega í samgöngum, húsnæði og grænni raforku.
Í niðurlagi greinarinn segir Ingólfur að áframhaldandi umbætur stjórnvalda á þessum sviðum séu lykilatriði í því að efla getu hagkerfisins til að efla lífskjör landsmanna, ekki síst þegar ytri skilyrði fari versnandi eins og um þessar mundir.
Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.
ViðskiptaMogginn / mbl.is, 9. apríl 2025.