Fréttasafn



19. nóv. 2025 Almennar fréttir Menntun

Iðngreinar settar í fókus á fundi í Hofi á Akureyri

Iðngreinar verða settar í fókus á fundi sem haldinn verður í Hofi á Akureyri í dag kl. 17-19. Að fundinum standa Iðan, SI og félagsfólk FMA, Byggiðn og FIT á Norðurlandi. Á fundinum þar sem fætt verður um fræðsluþarfir í iðngreinum, hvernig fræðsla og símenntun geti stutt við daglegt starf, nýsköpun, tækni og gæðakröfur í iðnaði á svæðinu. Spurt verður hvar þörf sé fyrir aukna þjálfun, hvaða hæfni sé mikilvægt að efla og hvernig hægt er að tryggja að framboð fræðslu þróist í takt við þarfir atvinnulífsins. 

Dagskrá

  • Jóhann Rúnar, formaður Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri – opnar viðburðinn
  • Benedikt Barðason, skólastjóri VMA
  • Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastýra Iðunnar – starfsemi og framtíðarsýn
  • Ólafur Ástgeirsson, leiðtogi bygginga- og mannvirkjagreina
  • Óskar Grétarsson, leiðtogi málm- og véltæknigreina
  • Sigurður Svavar Indriðason, leiðtogi bílgreina
  • Adam Snær Atlason – reynslusaga úr starfi
  • Fundarstjóri er: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur í mennta og mannauðsmálum hjá SI, stjórnarformaður Iðunnar fræðsluseturs
  • Kaffistofuspjall: Samtöl um fræðslu, iðngreinar og framtíðina. Léttar veitingar.