Iðnþing 2023
Tækifæri til vaxtar í öflugum iðnaði er yfirskrift Iðnþings 2023 sem fer fram í Silfurbergi í Hörpu fimmtudaginn 9. mars kl. 14-16. Fjölbreyttur og öflugur iðnaður er undirstaða góðra lífskjara á Íslandi og þar liggja helstu tækifærin til vaxtar hagkerfisins. Fjölbreytt iðnfyrirtæki um land allt skapa tugþúsundir starfa og miklar útflutningstekjur. Iðnaður er stærsta atvinnugreinin á Íslandi og kemur víða við sögu í okkar daglega lífi. Á Iðnþingi 2023 verður fjallað um stóru vaxtartækifærin á Íslandi og áskoranir sem þarf að mæta í mannauði, orkuöflun og innviðauppbyggingu.
Þátttakendur í dagskrá
- Árni Sigurjónsson, formaður SI
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Róbert Wessman, forstjóri og stjórnarformaður Alvotech
- Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel
- Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
- Valgerður Hrund Skúladóttir, framkvæmdastjóri Sensa
- Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins
- Guðbjörg Rist Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Atmonia
- Guðmundur Árnason, fjármálastjóri Controlant
- Halldóra Vífilsdóttir, framkvæmdastjóri Nordic
- Tryggvi Þór Herbertsson, stjórnarformaður Qair
- Sigurður R. Ragnarsson, stjórnarformaður ÍAV
- Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
- Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI
- Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI
Hér er hægt að skrá sig á þingið eða skanna kóðann fyrir skráningu:
https://vimeo.com/manage/videos/805046321
https://vimeo.com/event/3086082/66e04635ef