Iðnþing 2026
Iðnþing 2026 fer fram fimmtudaginn 5. mars kl. 14-16 í Silfurbergi í Hörpu.
Við byggjum öll okkar lífskjör á framleiðslu verðmæta. Aukið spennustig á alþjóðasviðinu og breytt aðgengi að erlendum mörkuðum kalla á sterka hagsmunagæslu Íslands. Óvissa og auknar þrengingar í efnahagsmálum hér á landi krefjast þess að heimatilbúnum hindrunum verði rutt úr vegi í þágu samfélagsins alls.
Með því að stilla saman strengina getum við skapað samhljóm um nauðsynlegar umbætur.
Þátttakendur í dagskrá
- Árni Sigurjónsson, formaður SI
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
- Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem Ísland
- Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical
- Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech
- Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals
- Inga Helga Halldórudóttir, yfirlögfræðingur Mílu
- Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness
- Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins
- Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI
- Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
- Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI
Boðið verður upp á léttar veitingar að dagskrá lokinni.
Hér er hægt að skrá sig á þingið.

https://vimeo.com/1168937982?fl=pl&fe=sh

