Íris Gunnarsdóttir til liðs við Samtök iðnaðarins
Íris Gunnarsdóttir hefur verið ráðin til Samtaka iðnaðarins sem viðskiptastjóri á mannvirkjasviði samtakanna og hefur þegar hafið störf. Íris er tengiliður fyrirtækja og félaga sem starfa á sviði innviðauppbyggingar, hönnunar og ráðgjafar. Starfið er hluti af mikilvægu hagsmunastarfi Samtaka iðnaðarins sem hefur það markmið að efla samkeppnishæfni íslensks iðnaðar og styðja fyrirtæki til að nýta tækifærin og að taka forystu á tímum breytinga.
Íris var áður lögfræðingur og sérfræðingur í regluverki mannvirkjagerðar hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Einnig starfaði hún sem lögfræðingur skipulags- og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar og þar áður hjá Brunavörnum Suðurnesja.
Íris er með BA-gráðu frá lagadeild Háskólans í Reykjavík.
mbl.is, 16. mars 2026.
Viðskiptablaðið, 16. mars 2026.
Vísir, 16. mars 2026.

