Ísland í fremstu röð með bættri samkeppnishæfni
Við viljum að Ísland sé í fremstu röð þegar kemur að lífsgæðum. Góð lífskjör byggjast á því að hér sé öflugt og samkeppnishæft atvinnulíf sem skapar verðmæti, störf og tækifæri til framtíðar. Þetta segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, meðal annars í grein í nýjasta tölublaði Vísbendingar. Hann segir að Samtök iðnaðarins hafi um árabil lagt áherslu á að styrkja samkeppnishæfni Íslands. Sjónum sé sérstaklega beint að þeim þáttum sem mestu ráði um samkeppnishæfni og framleiðni: starfsumhverfi, mannauði, nýsköpun, innviðum, orku og umhverfi.
Þá segi hann samkeppnishæfnin hafa dalað og efnahagshorfur versnað. Á marga mælikvarða standi Ísland vel enda hafi hagsaga landsins síðustu öldina einkennst af örum framförum. Lífskjör séu há, framleiðni talsverð, mannauður mikill, innviðir öflugir og nýsköpunarumhverfið gott. Ingólfur segir að sú staða sé ekki tilviljun heldur árangur markvissra aðgerða er varði samkeppnishæfni landsins sem þurfi stöðugt að rækta og bæta. Síðustu árin hafi orðið stöðnun. Staðreyndin sé sú að lífskjör, mæld sem landsframleiðsla á mann, hafi lítið sem ekkert batnað frá árinu 2018. „Sjö ár eru liðin og við höfum staðið í stað.“
Í niðurlagi greinarinnar segir Ingólfur að stóra verkefnið sé að rjúfa kyrrstöðuna í lífskjörum. Til þess þurfi skýra sýn, samhljóm um meginmarkmið og vilja til að ráðast í þær umbætur sem skila varanlegum árangri. Hann segir þetta ekki verða gert með einni aðgerð heldur samspili umbóta í öllum þeim þáttum sem mestu skipta fyrir samkeppnishæfni landsins. Ísland hafi áður sýnt að það geti tekið stór framfaraskref. Öflugur íslenskur iðnaður sé ein sönnun þess. Með miklum mannauði, betri innviðum, meiri nýsköpun, nægri orku og stöðugra, hagkvæmara og skilvirkara starfsumhverfi getum við aukið framleiðni og verðmætasköpun og tryggt að Ísland verði í fremstu röð þjóða í lífskjörum. Ingólfur segir að á grunni sterkari samkeppnishæfni byggjum við næsta vaxtarskeið og að lífskjör framtíðarinnar ráðist af því hvernig takist til.
Vísbending, 21. ágúst 2026.

