Íslenskt hugvit og framleiðsla geta aukið öryggi í heiminum
„Hugvit og framleiðsla íslenskra fyrirtækja getur nýst til þess að auka öryggi í heiminum,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í samtali við Björn Malmquist fréttamann á RÚV en Sigurður er staddur á ráðstefnu um fjárfestingu í varnar- og öryggismálum sem haldin er í tengslum við leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem fer fram í Haag í Hollandi. „Þá erum við að horfa á til dæmis tækni með tvíþætt notagildi, bæði borgaralega og hernaðarlega notkun í varnar og öryggislegum tilgangi. Leiðtogar NATO ríkjanna eru að koma hér saman með fulltrúum iðnaðarins og leggja grunninn að iðnaðarstefnu sem miðar að því að auka viðnámsþrótt, varnir og öryggi í heiminum.“
Iðnaðurinn í lykilhlutverki
„Iðnaðurinn er auðvitað í lykilhlutverki þegar kemur að uppbyggingu mikilvægra innviða á Íslandi, og við höfum reyndar séð gott dæmi um það nýlega í tengslum við náttúruhamfarirnar á Reykjanesi,“ segir Sigurður í samtalinu við Björn. Sigurður segir jafnframt í samtalinu: „Hins vegar er það hugvit og framleiðsla íslenskra fyrirtækja sem getur nýst til þess að auka öryggi í heiminum og þá erum við að horfa á til dæmis tækni með tvíþætt notagildi, bæði borgaralega og hernaðarlega notkun í varnar og öryggislegum tilgangi og þarna eru þegar til lausnir sem að hafa verið nýttar og seldar í þessum tilgangi en ég veit það líka að það eru svo mun fleiri möguleikar í stöðunni; möguleikar sem fyrirtæki hafa verið að þróa og vinna með, og við höfum verið að vinna með okkar félagsmönnum til að sjá þessa möguleika. Við höfum unnið mjög þétt með stjórnvöldum í á Íslandi, utanríkisráðuneytinu sérstaklega hvað þetta varðar, einnig Íslandsstofu og NATO og fleirum, til þess að reyna að finna þessa möguleika á að koma frá þessu hugviti á þessari framleiðslu beint á markað eða þá í samstarfi við aðra.“
Fjölbreyttar vörur með tvíþætt notagildi
Þegar Björn innir hann eftir sérstökum dæmum um framleiðslu með tvíþætt notagildi segir Sigurður: „Þetta eru fjölbreyttar vörur. Það geta verið vindmyllur sem eru notaðar á afskekktum svæðum, við höfum séð ómannaða kafbáta sem hafa verið framleiddir á Íslandi, breyttar bifreiðar sem hafa notaðar í þessu skyni og ýmisskonar tæknivörur, þannig að það er í rauninni fjölmargt sem er þegar til og ég veit líka að mörg fyrirtæki eru að velta fyrir sér hvernig þau geta aðlagað sína framleiðslu að þeim þörfum sem núna eru upp til að auka öryggi í heiminum, þannig að við hjá Samtökum iðnaðarins höfum fagnað því mjög að stjórnvöld á Íslandi skuli hafa áttað sig á mikilvægi þess að vinna með iðnaðinum.“
Hér er hægt að hlusta á viðtal Björns við Sigurð.
RÚV, 24. júní 2025.