Fréttasafn



25. jún. 2025 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki

Íslenskur iðnaður vel í stakk búinn að svara kallinu

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, sat sérstakan viðburð um varnartengdan iðnað sem haldinn var í tengslum við leiðtogafund NATO sem fer fram í Haag í Hollandi. Rætt er við Sigurð í Morgunblaðinu þar sem hann var staddur í Haag og segir hann að iðnaðurinn á Íslandi og í Evrópu sé tilbúinn að svara kalli um aukna hergagnaframleiðslu og uppbyggingu varnartengdra innviða meðal aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO). 

Samþykkja stóraukin framlög til varnarmála og leggja drög að iðnaðarstefnu

Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að mikil áhersla hafi verið lögð á að auka samhæfingu og afkastagetu varnartengds iðnaðar á milli Evrópu og Norður-Ameríku í ljósi hækkandi spennustigs í heiminum og að NATO, Evrópusambandið og iðnaðurinn leggi nú drög að iðnaðarstefnu í tengslum við varnarmálin. „Þetta auðvitað kemur til af því að spennan í heiminum hefur aukist og leiðtogarnir eru hér samankomnir til þess að samþykkja stóraukin framlög til varnarmála á næstu árum,“ segir Sigurður.

Einfalda þarf regluverk í þágu aukinnar uppbyggingar

Sigurður segir í viðtalinu að það sem hafi verið mjög áberandi í umræðunni varðandi hækkun útgjalda, fyrir utan fjármögnun og útboðsferli eða innkaupaferli, væri einföldun á regluverki. „Það hefur verið mikill þungi varðandi þörfina á því að Evrópusambandið einfaldi regluverk í þágu aukinnar uppbyggingar á þessu sviði.“ Þegar blaðamaður spyr hann hvernig íslenskur iðnaður komi að þessu svarar Sigurður: „Annars vegar er þetta uppbygging innviða og þar er auðvitað býsna mikil þörf. En við höfum líka séð samstarf af því tagi í verki upp á síðkastið með viðbrögðum á Reykjanesi í tengslum við eldsumbrotin. Þá er ég að vísa í gerð varnargarða og ýmislegt annað þar sem stjórnvöld og iðnaðurinn hafa tekið höndum saman. En síðan er þetta líka eins og forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa nefnt, þetta getur tengst hafnarmannvirkjum, samgöngumannvirkjum, fjarskiptum og bættri tengingu.“

Íslenskur iðnaður getur tekist á við aukna uppbyggingu innviða

Sigurður segir íslenskan iðnað vel í stakk búinn til að mæta því ef varnartengd útgjöld verða aukin og hann þurfi að auka afkastagetu. „Já, iðnaðurinn er vel í stakk búinn og hann náttúrlega er vanur því að auka sín umsvif og líka draga saman seglin hratt eins og aðstæður krefjast. Þannig að ég er þess fullviss að iðnaðurinn geti tekist á við aukna uppbyggingu innviða.“ 

Íslensk tækni og hugvit nýtist í varnartengdum tilgangi

Þá kemur fram hjá Sigurðir að það skipti máli hvernig hægt sé að nýta íslenska tækni og hugvit í varnartengdum og borgaralegum tilgangi, t.d. nefnir hann sáraumbúðir frá Kerecis og ómannaða kafbáta sem hafi verið þróaðir á Íslandi. „Fyrirtækin eru að átta sig á því að þeirra vörur, það sem þau hafa skapað með sínu fólki, er hægt að aðlaga að þörfum til þess að auka öryggi í heiminum. Það er mjög spennandi viðfangsefni fyrir íslenskt efnahagslíf og getur orðið mjög mikilvægt framlag Íslands til heimsins á þessum viðsjárverðu tímum.“

Morgunblaðið / mbl.is / mbl.is, 25. júní 2025.

Morgunbladid-25-06-2025_2