Fréttasafn



24. feb. 2021 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Kallað eftir tilnefningum fyrir Kuðunginn

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kallar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári hljóti umhverfisviðurkenninguna Kuðungurinn fyrir árið 2020 sem er afhent í tengslum við Dag umhverfisins. Á síðasta ári hlaut verkfræðistofan Efla viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á árinu 2019. Á myndinni hér fyrir ofan má sjá Helgu J. Bjarnadóttur, sviðsstjóra samfélagssviðs og Guðmund Þorbjörnsson, framkvæmdastjóra Eflu, taka við Kuðungnum úr hendi Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta bæði tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.

Tillögur þurfa að berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en 22. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið uar@uar.is eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.