Fréttasafn



10. ágú. 2026 Almennar fréttir Menntun

Kallar eftir að blásið verði til sóknar með bættum námsgögnum

Ný greining mennta- og barnamálaráðuneytisins á stöðu stærðfræðikennslu styður við það sem margir kennarar hafa lengi bent á. Of mikill tími fer í að búa til eigið námsefni vegna þess að námsgögn eru víða komin til ára sinna og stuðningur við kennslu er ekki nægur. Þetta segir Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá SI, í grein á Vísi með yfirskriftinni Blásum til sóknar í menntun með bættum námsögnum. Hún segir að greiningin fjalli um stærðfræði en spurningin sem hún veki nái mun lengra; hversu víða í íslensku menntakerfi séu kennarar að fylla í eyður sem kerfið ætti sjálft að sjá um?

Mikilla umbóta þörf í íslensku menntakerfi

Hulda segir að áhyggjur af stöðu menntamála séu ekki bundnar við innlenda umræðu. Í skýrslu OECD frá 2025 sé bent á að mikilla umbóta sé þörf í íslensku menntakerfi og að staða barna af erlendum uppruna sé sérstakt áhyggjuefni. Þar sé jafnframt vísað til slakrar stöðu íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði og hvatt til markvissari umbóta í skyldunámi. Hún segir að við vitum hver vandinn sé. Í meira en tvo áratugi hafi verið kallað eftir markvissari uppbyggingu íslenskra námsgagna. Árið 2024 hafi Samtök iðnaðarins, Samtök menntatæknifyrirtækja, Iðnú, Félag íslenskra bókaútgefanda, Kennarasamband Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Hagþenkir og Reykjavíkurborg sameinast um sameiginlegt ákall til stjórnvalda um aukna fjárfestingu í þróun og útgáfu fjölbreyttra námsgagna. Þá kemur fram í grein Huldu að nágrannaþjóðir okkar verji margfalt hærra hlutfalli af útgjöldum til skólamála í þróun og endurnýjun námsgagna en Ísland. Hlutfallið hér á landi sé um 0,4% í samanburði við 1,5- 4% hjá nágrannaþjóðunum. Niðurstöður greiningar mennta- og barnamálaráðuneytisins séu skýrar. Um 76% grunnskólakennara þurfi reglulega að sækja viðbótarefni og 84% noti eigið kennsluefni. Kennarar haldi þannig kerfinu gangandi með eigin vinnu í stað þess að geta varið tíma sínum fyrst og fremst í kennslu og stuðning við nemendur.

Fjárfest í þróun námsgagna sem eiga ekki greiða leið inn í íslenskar skólastofur

Þá kemur fram í grein Huldu að þversagnar gæti sem erfitt sé að horfa fram hjá því samfélagið fjárfesti í þróun lausna sem eigi að efla menntun, en þegar komi að því að koma þeim í notkun skortir oft bæði fjármögnun og samræmda innleiðingu. Afleiðingin sé sú að kennarar fá ekki þau verkfæri sem þeir þurfa, álag aukist og nemendur missi af þeim tækifærum sem vönduð íslensk námsgögn geti skapað. Hún segir að íslensk fyrirtæki, höfundar og frumkvöðlar hafi þróað vefbækur, gagnvirkt námsefni, lausnir til að halda utan um lestur, kennsluleiki, verkefnabanka, mats- og utanumhaldslausnir og fjölbreytt önnur námsgögn sem styðji við lestur, stærðfræði, upplestur, inngildingu, gæðastarf skóla og daglegt kennslustarf. Margar þessara lausna séu þróaðar af kennurum og sérfræðingum úr íslenska menntakerfinu. Þær hafi farið í gegnum faglegt mat, uppfylli kröfur um persónuvernd og hafi hlotið opinbera nýsköpunarstyrki til þróunar. En þegar komi að innleiðingu blasi við önnur staða. Í mörgum tilvikum hafi skólar ekki fjármagn til að taka námsgögnin í notkun. Auk þess skorti samræmt verklag. „Þótt lausnir hafi verið þróaðar í samræmi við persónuverndarlöggjöf og farið í ítarlegt matsferli geta sveitarfélög farið fram á nýtt mat eða viðbótarúttektir áður en þær eru teknar í notkun. Það skapar tvíverknað, kostnað og tafir.“ Hún segir að þetta veki eðlilega upp spurningar. Ísland starfi samkvæmt sömu persónuverndarlöggjöf og önnur ríki á Evrópska efnahagssvæðinu, en engu að síður virðist innleiðing íslenskra námsgagna og kennslulausna oft flóknari og tímafrekari en nauðsynlegt sé. Á sama tíma geti sömu lausnir átt greiðari leið inn á erlenda markaði en inn í íslenskar skólastofur.

Málstofa og sýning um íslensk námsgögn

Í lok greinarinnar bendir Hulda á að málstofan og sýningin „Íslensk námsgögn – hvað er til?“ verði haldin í þriðja sinn 13. ágúst næstkomandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þar munu hátt í 30 aðilar kynna fjölbreytt íslensk námsgögn, allt frá hefðbundnum námsbókum til gagnvirkra stafrænna kennslulausna, og ræða hvernig hægt er að efla þróun þeirra og umfram allt brúa bilið milli nýsköpunar og notkunar í skólum. Hún segir að málstofan sé öllum opin og séu kennarar, skólastjórnendur, foreldrar, fyrirtæki, stjórnvöld og aðrir áhugasamir hvattir til að taka þátt í umræðunni. Málstofunni verður streymt.

Á vef Vísis er hægt að lesa greinina í heild sinni.

Vísir, 8. ágúst 2026.