Fréttasafn



31. des. 2021 Almennar fréttir

Kjarasamningar verða ein stærsta áskorun nýs árs

Ljóst er að kjarasamningar verða ein stærsta áskorun nýs árs þar sem tekist verður á um það hvort nóg sé til skiptanna eða um að auka verðmætasköpun. Iðnaðurinn hefur trú á hinu síðarnefnda. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í áramótagrein í ViðskiptaMogganum. Hann segir iðnað vera stærstu atvinnugrein landsins og þar undir rúmist fjölbreytt starfsemi í hugverkaiðnaði, byggingariðnaði, framleiðsluiðnaði og handiðnaði. Þau séu því margar og ólíkar áskoranir sem blasi við fyrirtækjum í iðnaði en bætt samkeppnishæfni sem byggist á umbótum í menntun, innviðum, nýsköpun og starfsumhverfi sameini fyrirtækin. 

Hraða þarf uppbyggingu húsnæðis á nýju ári

Þá segir Sigurður að eitt helsta viðfangsefni nýs árs verður að hraða uppbyggingu húsnæðis en ástandið á fasteignamarkaði hefur kynt undir óstöðugleika og verðbólgu. Miklar væntingar séu bundnar við nýtt innviðaráðuneyti í þeim efnum en sveitarfélögin þurfi að sýna meiri ábyrgð í málaflokknum með ákvörðunum í skipulagsmálum, hraðari leyfisveitingum og auknu framboði lóða. „Á árinu hafa orðið talsverðar umbætur í byggingamálum þar sem regluverk hefur verið einfaldað og Mannvirkjaskrá tekin í notkun þar sem yfirsýn fæst á húsnæðis- og byggingamarkaðinn. Fyrir hönd Samtaka iðnaðarins vona ég að árið 2022 geti orðið síðasta árið þar sem við teljum íbúðir í byggingu.“

Veðjað á hugvitið sem getur skilað varanlegri aukningu á lífsgæðum

Í greininni kemur fram að hugverkaiðnaður hafi blómstrað á líðandi ári þar sem saman fari öflugir frumkvöðlar og stórbætt umgjörð nýsköpunar þar sem stjórnvöld hafi veðjað á hugvitið. „Það veðmál getur skilað landsmönnum varanlegri aukningu á lífsgæðum. Það sárvantar fólk til starfa í hinum vaxandi hugverkaiðnaði og tefur það vöxt. Stjórnvöld eiga að festa umgjörð nýsköpunar í sessi og fjölga sérfræðingum á vinnumarkaðnum, jafnt innlendum sem erlendum, eins og kveðið er á um í stjórnarsáttmálanum.“

Aðgerða er þörf í orkumálum

Í niðurlaginu segir Sigurður að aðgerða sé þörf í orkumálum og uppbygging raforkukerfis verði viðfangsefni nýs árs. „Staðan er einfaldlega sú að meira og minna öll orka sem er framleidd er seld og því til viðbótar er treyst á yfir hálfrar aldar gamla byggðalínu til að koma orku á milli staða. Niðurstaðan er sú að skerða hefur þurft orku til notenda og óveður veldur rafmagnsleysi í marga daga.“

ViðskiptaMogginn, 29. desember 2021.

VidskiptaMoggi-29-12-2021