Fréttasafn



8. nóv. 2022 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Orka og umhverfi

Kolefnishlutleysi til umfjöllunar á sjöunda Loftslagsfundinum

Árlegur Loftslagsfundur Festu og Reykjavíkurborgar fer fram fimmtudaginn 10. nóvember kl 13.00-16.00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Yfirskrift fundarins er Kolefnishlutleysi 2030. Hvernig? Loftslagsfundurinn er haldinn í sjöunda sinn en fundurinn var haldin í fyrsta sinn í kjölfar þess að rúmlega 100 forstjórar fyrirtækja skrifuðu undir Loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar þar sem þau settu það fram að þau myndu draga úr losun og úrgangi og birta opinberlega gögn um þá vegferð. Á vef Festu er hægt að skrá sig á fundinn og nálgast frekari upplýsingar.

Fundarstjóri er Nanna Elísa Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI.

Dagskrá

  • Stefán Örn Snæbjörnsson, kjörinn Ungur umhverfissinni 2021 -2022 af Ungum umhverfissinnum
  • Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
  • Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur
  • Tómas N. Möller, formaður Festu
  • Kaffihlé 13.45 – 14.00
  • Kolefnishlutleysi í rekstri – hvað er það og hvernig forðumst við grænþvott? Birgitta Steingrímsdóttir, sérfræðingur í teymi hringrásarhagkerfisins hjá Umhverfisstofnun
  • Opinber innkaup og útboð – hvernig geta áherslur og kvaðir í opinberum útboðum nýst í vegferðinni að kolefnishlutleysi? Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, verkefnastjóri umhverfismála á skrifstofu framkvæmda og viðhalds hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar
  • Við höfum sett okkur markmið um kolefnishlutleysi – hvað erum við að gera?
    Dæmisögur fyrirtækja sem hafa undirritað Loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar.
    • Science Based Targets Initiative aðferðarfræðin – Marel Þorsteinn Kári Jónsson, forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla
    • Kolefnishlutlaus framleiðsla og vottun frá B-corporation – 66° Norður Bjarney Harðardóttir, Head of Brand
  • Hvernig mælum við losun frá rekstri og virðiskeðju og setjum fram aðgerðaráætlun? Sigurpáll Ingibergsson, gæðastjóri Vínbúðanna og fulltrúi í sérfræðingahóp um Loftslagsmæli Festu
  • Stóra og mikilvæga verkefnið – Innleiðum hringrásarhagkerfi. Úrgangsmál fyrirtækja. Freyr Eyjólfsson – verkefnastjóri hringrásarhagkerfisins hjá Sorpu
  • Dæmisögur fyrirtækja sem hafa undirritað Loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar.
    • Kolefnishlutleysi í steinsteypu – Hornsteinn Sigríður Ósk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri umhverfismála
    • Hlutverk stafrænnar þjónustu í átt að kolefnishlutleysi – Júní Guðmundur Sigurðsson, hönnunarstjóri