Fréttasafn



3. feb. 2023 Almennar fréttir

Kosningar og Iðnþing 2023

Iðnþing 2023 fer fram fimmtudaginn 9. mars nk. Í tengslum við Iðnþing fara fram rafrænar kosningar, þ.e. kosið er til stjórnar, auk þess sem kallað er eftir framboðum í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins.

Auglýst er eftir tilnefningum til þessara trúnaðarstarfa. Tilkynning þess efnis var send á félagsmenn 26. janúar sl.

Tilnefningar verða að hafa borist eigi síðar en 9. febrúar nk. til skrifstofu Samtaka iðnaðarins á tölvupóstfangið adalfundur@si.is.

Um kjör til stjórnar Samtaka iðnaðarins

Í 7. kafla laga Samtaka iðnaðarins segir: Stjórn SI skipa tíu menn, formaður og níu meðstjórnendur. Formaður er kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn. Meðstjórnendur eru jafnframt kosnir til tveggja ára og ganga því fjórir þeirra út annað árið en fimm hitt. Við kjör meðstjórnenda hljóta þeir fjórir eða fimm sem flest atkvæði hljóta, kosningu sem stjórnarmenn til tveggja ára. Þeir menn sem næstir koma að atkvæðamagni eru réttkjörnir varamenn og skulu taka sæti aðalmanna í stjórn, í samræmi við atkvæðafjölda á Iðnþingi.

Að þessu sinni er kosið um fjögur sæti meðstjórnenda.

Um kjörgengi er fjallað í 19. og 20. gr. laga SI. Kjörgengir eru þeir einstaklingar sem eiga aðild að SI og þeir sem sinna daglegum stjórnunarstörfum eða sitja í stjórn hjá félagsaðila. Einungis þeir geta boðið sig fram til stjórnar sem kjörgengir eru við lok framboðsfrests.

Kosningar til stjórnar Samtaka iðnaðarins fara fram með rafrænum hætti. Eigi síðar en hálfum mánuði fyrir Iðnþing verða sendir út atkvæðaseðlar ásamt leiðbeiningum um tilhögun kosninganna. Hver félagsaðili hefur atkvæði í hlutfalli við greidd félagsgjöld ársins 2021. Hverjum heilum 1.000 krónum í greiddum félagsgjöldum fylgir eitt atkvæði.

Sérstök athygli skal vakin á því að lög SI gera ráð fyrir að þau iðngreina- og meistarafélög, sem gerst hafa aðilar að SI fyrir hönd félagsmanna sinna, fari með atkvæðisrétt þeirra. Vilji einstaka félagsmaður iðngreina- eða meistarafélags fara með sitt eigið atkvæði eða vilji einstök félög hafa þann hátt á að einstakir félagsmenn þeirra fari með sín atkvæði sjálfir er nauðsynlegt að tilkynna það skrifstofu SI fyrir 23. febrúar næstkomandi.

Áréttað skal að allir félagsmenn hafa rétt til setu á Iðnþingi og eru kjörgengir í stjórnarkjör óháð því hvort meistara- eða iðngreinafélög, sem þeir eru aðilar að, fara með atkvæði fyrir þeirra hönd.

Um kjör til fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífsins

Í 9. kafla laga Samtaka iðnaðarins segir að kjör fulltrúa SI í fulltrúaráð SA fer fram á Iðnþingi. Þátt í þeim kosningum geta tekið aðildarfyrirtæki SI að því marki sem þau hafa ekki ákveðið að tilnefna eigin fulltrúa skv. lögum SA þar um. Kjörnefnd leitar með áskorun til félagsmanna eftir tillögum um fulltrúa í fulltrúaráð SA og skulu tillögur berast kjörnefnd SI minnst 20 dögum fyrir Iðnþing. Kjörnefnd SI gerir tillögu til stjórnar um heildarlista yfir fulltrúa SI í fulltrúaráð SA sem lagður er fram til samþykktar á Iðnþingi.

Ekki er endanlega ljóst hve marga fulltrúa SI skal kjósa en þeir eru nú 35.

Fyrirtæki, sem geta og vilja tilnefna sína fulltrúa beint í ráðið, verða að tilkynna það til skrifstofu SA fyrir 14. febrúar nk. í samræmi við lög SA.