Fréttasafn



2. feb. 2022 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki

Kynningarfundur um fyrirhugað útboð í Axarveg

Vegagerðin boðar til opins rafræns kynningarfundar föstudaginn 4. febrúar kl. 9.00 um fyrirhugað útboð í samvinnuverkefninu „Axarvegur (939) – nýr vegur yfir Öxi.“ Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að verkefnið feli í sér fjármögnun, hönnun nýrrar legu vegarins um Öxi (939), framkvæmd verksins, viðhald og umsjón hans til allt að 30 ára í samræmi við lög nr. 80/2020 um samvinnuverkefni.

Forsendur hönnunar eru m.a. fyrirliggjandi forhönnun og hönnunarforsendur Vg, er byggja meðal annars á niðurstöðum umhverfismats. Vegurinn, sem er 20 km langur tveggja akreina, klæddur bundnu slitlagi, kemur til með að liggja frá gatnamótum Skriðdals og Breiðdalsvegar (95) að tengingu við Berufjarðarbrú. Hann kemur til með að liggja hæst í um 520 metra hæð yfir sjávarmáli, eins og núverandi vegur. Gert er ráð fyrir að minnsta kosti einni brú á leiðinni, yfir Berufjarðará, en hugsanlegt er að hönnun leiði í ljós að hagkvæmt væri að hafa brýr í stað ræsa og fyllinga á fleiri stöðum. Heildar efnisþörf jarðefna er áætluð rétt tæplega 1,4 milljónir rúmmetra, en gert er ráð fyrir að stærstur hluti þess efnis komi úr skeringum í vegstæði.

Á þessum hlekk er hægt að nálgast streymið: https://vimeo.com/event/1798783

  https://vimeo.com/event/1798783