Kynningarfundur um Tækniþróunarsjóð
Samtök iðnaðarins og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð miðvikudaginn 28. janúar kl. 9:00-10:30 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, á 1. hæð.
Sérfræðingar frá Rannís munu kynna opinberan stuðning til nýsköpunarverkefna í Tækniþróunarsjóði auk tækifæra á erlendum mörkuðum.
Dagskrá
• Styrkir Tækniþróunarsjóðs
• Skattahvatar rannsókna- og þróunarverkefna
• Styrkir Eurostars og þjónusta EEN
• Reynslusaga styrkþega
Boðið verður upp á morgunkaffi og að loknum erindum gefst góður tími fyrir spurningar, samtal og tengslamyndun.
Hér er hægt að skrá sig á fundinn. Fundurinn verður einnig í streymi.
Hér er hægt að nálgast viðburðinn á Facebook.

