Fréttasafn



5. júl. 2023 Almennar fréttir Nýsköpun

Kynningarfundur um Tækniþróunarsjóð

Samtök iðnaðarins og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð fimmtudaginn 16. ágúst kl. 8.30-10 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, fundarsalnum Hyl á 1. hæð. Boðið verður upp á léttan morgunverð.

Dagskrá

  • Tækniþróunarsjóður - kynning á styrkjaflokkum og ferlinu
  • Skattafrádráttur vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar
  • Skattafrádráttur erlendra sérfræðinga
  • Kynningar frá félagsmönnum SSP sem hafa fengið styrk: 
  • Íris Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Snerpa Power
  • Jón Már Björnsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs ORF líftækni
  • Umræður

Fundarstjóri er Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Taekni-fundur-2023