Kynningarfundur um Tækniþróunarsjóð
Samtök iðnaðarins, Samtök sprotafyrirtækja og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð þriðjudaginn 27. ágúst kl. 8.30-10 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, fundarsalnum Hyl á 1. hæð. Boðið verður upp á léttan morgunverð.
Fundarstjóri er Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI.
Dagskrá
- Tækniþróunarsjóður – kynning á styrkjaflokkum og kerfinu
- Skattafrádráttur vegna rannsókna- & þróunarkostnaðar
- Eureka – Innovvide styrkir fyrir markaðssókn á markaði utan Evrópu ásamt kynningu á þjónustu EEN – Mjöll Waldorff hjá Rannís
- Kynning frá fyrirtæki sem hefur fengið styrk – Alexander Jóhönnuson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Ignas ehf og formaður Samtaka sprotafyrirtækja
Hér er hægt að skrá sig á kynningarfundinn.