Fréttasafn



7. jún. 2022 Almennar fréttir Ár grænnar iðnbyltingar Innviðir Mannvirki

Kynningarfundur um vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð

Byggjum grænni framtíð, samstarfsvettvangur stjórnvalda og atvinnulífs um vistvæna mannvirkjagerð, boðar til fundar í tilefni af útgáfu á Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030 fimmtudaginn 9. júní kl. 14-16 á Hilton Reykjavík Nordica. Á fundinum verða helstu efnistök vegvísisins kynnt í fyrsta sinn og þau rædd meðal ólíkra hagaðila.

Vegvísirinn var unninn á vegum samstarfsvettvangsins. Viðfangsefnið var að meta losun íslenskra bygginga, setja markmið um að draga úr þeirri losun fyrir 2030 og skilgreina aðgerðir til að ná þeim markmiðum. Hátt í 200 einstaklingar innan allrar virðiskeðju mannvirkjageirans komu að þessari vinnu og verða niðurstöður hennar birtar í vegvísinum.

Fundarstjóri er Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.

Dagskrá

Ávarp Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra

Ávarp Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030: Losun, markmið og aðgerðir Áróra Árnadóttir, framkvæmdastjóri Grænni byggðar, og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, teymisstjóri hjá HMS

Pallborð I
Umræðustjóri: Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdarstjóri hjá Vegagerðinni
Hermann Jónasson, forstjóri HMS
Marta Rós Karlsdóttir, sviðsstjóri hjá Orkustofnun

Ólafur Árnason, forstöðumaður hjá Skipulagsstofnun
Ólöf Örvarsdóttir,
sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg

Pallborð II
Umræðustjóri: Elva Rakel Jónsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun
Bjarma Magnúsdóttir, umhverfisstjóri ÍAV

Kai Westphal, framkvæmdastjóri steypuframleiðslu og dreifingar hjá Steypustöðinni

Helga Jóhanna Bjarnadóttir, sviðsstjóri hjá Eflu
Sunna Hrönn Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Regin fasteignafélagi
Þröstur Söring, framkvæmdastjóri hjá Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum

Viðburðurinn er öllum opinn. Boðið verður upp á veitingar þegar dagskrá lýkur kl. 15.15.

Þau sem ekki komast á fundinn geta nálgast Teams-hlekk hér

Hér er hægt að skrá sig á fundinn. 

Auglysing-juni-2022