Fréttasafn



15. apr. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum

Atvinnustefna Íslands sem kynnt var á dögunum er mikilvæg viðurkenning á því að framtíðarsókn hagkerfisins hvílir á fjárfestingu í nýsköpun sem er forsenda aukinnar framleiðni. Nú skiptir mestu að þær trúverðugu aðgerðir sem hafa verið kynntar skili sér í starfsumhverfi sem einkennist af fyrirsjáanleika, stöðugleika og samkeppnishæfni. Þetta segja Hulda Hallgrímsdóttir formaður Tækni- og hugverkaráðs SI og Erla Tinna Stefánsdóttir hjá Samtökum iðnaðarins í grein á Vísi með yfirskriftinni Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum

Þær segja að tækni- og hugverkaiðnaður sé ekki lengur hliðargrein heldur ein af meginútflutningsstoðum Íslands. Tækni- og hugverkaráð Samtaka iðnaðarins hafi nú verið stækkað og endurskipulagt til að mæta þessum nýja veruleika. Ráðið hafi sett fram metnaðarfulla stefnu um að greinin verði leiðandi stoð hagkerfisins fyrir lok áratugarins. Hulda og Erla Tinna segja í greininni að til að það markmið náist þurfi að vanda til verka í þeim lykilmálum sem ráða mestu um áframhaldandi vöxt: stöðugu starfsumhverfi, menntakerfi sem mætir framtíðarþörfum og skýrri sýn á mikilvægi hugvits fyrir samkeppnishæfni þjóðarinnar.

Hulda og Erla Tinna segja að spurningin sem við stöndum frammi fyrir sé einföld: ætlum við að skapa þessari atvinnugrein umhverfi til vaxtar, eða ætlum við að horfa upp á tækifærin renna okkur úr greipum? Þær segja að tölurnar tali sínu máli. Í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins komi fram að tækni- og hugverkaiðnaður skilaði 369 milljörðum króna í útflutningstekjur árið 2025 sem samsvari 18,6% af heildarútflutningstekjum landsins. Þegar vörur og þjónusta sem byggi á hugverkum standi undir tæpum fimmtungi útflutnings sé ljóst að um kjarnastarfsemi í verðmætasköpun þjóðarinnar sé að ræða. „Metnaður okkar ætti að standa til þess að Ísland verði fyrsti valkostur fyrir tækni- og hugverkafyrirtæki sem ætla sér stóra hluti á alþjóðlegum mörkuðum.“

Þá segja þær í greininni að efling Tækni- og hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins sé mikilvægt skref í þeirri vegferð að fögur orð atvinnustefnunnar birtist í efndum og áþreifanlegum breytingum. Með ráðinu verði til enn sterkari vettvangur fyrir metnaðarfullt, gagnadrifið og uppbyggilegt samtal við stjórnvöld um það sem nú skiptir mestu: að tryggja fyrirsjáanlegt og hvetjandi starfsumhverfi fyrirtækja í tækni- og hugverkaiðnaði, menntakerfi sem mætir framtíðarþörfum og sóknarplan fyrir Ísland. Markmiðin séu að hér blómstri nýsköpun sem aldrei fyrr, að verðmætasköpun aukist og að háframleiðnistörf, þekking og fjárfesting verði til og haldist hér á landi. Í niðurlagi greinarinnar segja þær: Sækjum tækifærin saman – fyrir framtíð Íslands.

Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.

Vísir, 15. apríl 2026.