Leiknir nýr formaður Félags skrúðgarðyrkjumeistara
Aðalfundur Félags skrúðgarðyrkjumeistara var haldinn þann 13. maí síðastliðinn í Húsi atvinnulífsins. Á fundinum áttu sér stað formannsskipti þar sem Leiknir Ágústsson tók við formennsku af Snjólfi Eiríkssyni sem fer úr stjórn. Að öðru leyti er stjórnin óbreytt með Ragnar Stein Guðmundsson sem gjaldkera og Berglindi Ásgeirsdóttur sem ritari. Ingibjörg Sigurðardóttir og Jóhann B. Skúlason halda einnig áfram í stjórn.
Á fundinum var farið yfir störf félagsins á liðnu starfsári þar sem áhersla hefur verið lögð á öfluga hagsmunagæslu fyrir greinina, sérstaklega í tengslum við menntamál og starfsumhverfi skrúðgarðyrkjufólks. Meðal stærstu verkefna ársins voru málefni Garðyrkjuskólans að Reykjum, þar sem félagið hefur kallað eftir tafarlausum úrbótum á húsnæði og aðstöðu skólans.
Jafnframt hefur félagið unnið að því að efla fagmennsku innan greinarinnar, meðal annars með vinnu við verklýsingar og því að styrkja stöðu skrúðgarðyrkju innan mannvirkjageirans. Þá var einnig kynnt ný heimasíða félagsins auk nýrrar auglýsingaherferðar sem ætlað er að vekja athygli á faginu og mikilvægi faglærðra skrúðgarðyrkjumeistara.
Á fundinum var rætt um undirbúning 60 ára afmælis Félags skrúðgarðyrkjumeistara árið 2027, þar sem stefnt er að ráðstefnu og hátíðardagskrá í tilefni tímamótanna.
Leiknir Ágústsson, t.h., tók við formennsku af Snjólfi Eiríkssyni.


