Leyfismál og lagarammi valda kostnaðarsömum orkuskorti
Í ViðskiptaMogganum er rætt við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, um áhrif leyfismála og lagaramma á uppbyggingu virkjana. Í fréttinni segir að á útboðsþingi SI í janúar hafi verið vakin athygli á kostnaðarsömu aðgerðaleysi í virkjunarmálum fyrir íslenskt samfélag. Fram hafi komið að helstu opinberir framkvæmdaaðilar gerðu ráð fyrir framkvæmdum fyrir 264 milljarða króna á þessu ári. Landsvirkjun sé þar langumfangsmest með um 92 milljarða króna framkvæmdir boðaðar á árinu. Sem sé um 35% af öllum fyrirhuguðum framkvæmdum opinberra aðila á þinginu. Einnig kemur fram að Sigurður hafi bent á að raunútboð Landsvirkjunar á síðasta ári hafi numið 38 milljörðum króna. Í upphafi þessa árs hafi Landsvirkjun hins vegar gert ráð fyrir framkvæmdum fyrir 100 milljarða en vegna tafa á leyfisveitingum hafi ekki raungerst nema þriðjungur fyrirhugaðra útboða.
Í fréttinni segir að Sigurður fullyrði að flókin málsmeðferð leyfismála vatnsaflsvirkjana og lagaramminn valdi kostnaðarsömum orkuskorti á Íslandi. „Það er bara staðan. Landsvirkjun hefur verið með Hvammsvirkjun í undirbúningi í 25 ár. Landsvirkjun taldi sig hafa farið í gegnum allt ferlið og sótti um virkjunarleyfi um mitt ár 2021. Staðan tæpum fjórum árum seinna er sú að það ríkir fullkomin óvissa í málinu. Hvað varðar málsmeðferðina vakti það athygli á sínum tíma hvað Orkustofnun var lengi að afgreiða málið. Fram að því var talað um að það tæki 30 daga að fá virkjunarleyfi, en málsmeðferðin tók tvö ár hjá stofnuninni. Hitt vandamálið er lögin. Héraðsdómur felldi úr gildi virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun þar sem leyfið samrýmdist ekki vatnalögum.“
ViðskiptaMogginn / mbl.is, 26. febrúar 2025.