Málstofa og sýning um hvað er til af íslenskum námsgögnum
Er eitthvað til? Hafa íslenskir útgefendur og höfundar hætt að þróa námsefni? Eða er staðan þvert á móti sú að úrvalið er meira en margir gera sér grein fyrir? Þessum spurningum verður velt upp á málstofunni Íslensk námsgögn, hvað er til? sem fer fram fimmtudaginn 13. ágúst kl. 16-18 í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Á dagskrá eru stutt erindi frá fulltrúum menntakerfisins og útgáfugeirans auk sýningar þar sem gestir geta kynnt sér fjölbreytt íslensk námsgögn.
Málstofan er haldin í þriðja sinn og hefur markmið hennar frá upphafi verið að varpa ljósi á þá þróun, nýsköpun og fjölbreytni sem á sér stað í íslenskri útgáfu og þróun námsgagna. Þrátt fyrir að reglulega heyrist að lítið sé gefið út af íslensku námsefni sýnir sýningin allt aðra mynd.
Í ár hafa yfir 30 sýnendur skráð sig til leiks. Þar verður hægt að kynna sér nýjar kennslubækur, rafræn námsgögn, gagnvirkar lausnir, námsöpp, lestrar- og stærðfræðiefni, íslensku sem annað mál, tónmennt, raungreinar, samfélagsgreinar, íslenskt talgervlaefni, námsmatslausnir og fjölbreyttar kennslulausnir fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Sýningin endurspeglar þá miklu grósku sem er í íslenskri þróun námsefnis. Enn er hægt að skrá sig fyrir að sýna námsefni hér.
Að málstofunni standa Samtök iðnaðarins, Samtök menntatæknifyrirtækja Kennarasamband Íslands, Þróunarsjóður námsgagna, Rannís, Iðnú útgáfa, Félag íslenskra bókaútgefenda, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Menntaskólinn við Hamrahlíð. Hagþenkir og Reykjavíkurborg.
Sameiginlegt ákall þessara aðila er skýrt: íslenskir nemendur og kennarar þurfa að hafa aðgang að inngildandi, fjölbreyttum og vönduðum íslenskum námsgögnum, hvort sem um er að ræða prentað efni, stafrænar lausnir eða nýja kennsluhætti. Slík námsgögn eru forsenda þess að hægt sé að mæta ólíkum þörfum nemenda og styðja við öflugt skólastarf um allt land.
Samhliða málstofunni verður sýning á námsgögnum í húsakynnum Menntaskólans við Hamrahlíð. Þar gefst gestum kostur á að hitta höfunda, útgefendur og þróunaraðila og kynnast af eigin raun þeirri fjölbreytni sem íslensk námsgagnagerð hefur upp á að bjóða. Öll eru hjartanlega velkomin.
Skráning á viðburðinn er hér.


