Fréttasafn



13. ágú. 2026 Almennar fréttir Menntun

Málstofa og sýning um íslensk námsgögn í beinu streymi

Yfir 200 manns hafa skráð sig á málstofu og sýningu um íslensk námsgögn sem hefst í dag kl. 16 í Menntaskólanum við Hamrahlíð og stendur til kl. 18. Markmiðið er að varpa ljósi á þá þróun, nýsköpun og fjölbreytni sem á sér stað í íslenskri útgáfu og þróun námsgagna. Á dagskrá málstofunnar sem ber yfirskriftina Íslensk námsgögn - hvað er til? eru stutt erindi frá fulltrúum menntakerfisins og útgáfugeirans. Meðal þeirra sem flytja erindi eru Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS), sem setur málstofuna. Tryggvi Hjaltason, framkvæmdastjóri Andvara, fjallar um ný verkfæri í verkfærakassanum, Páll Ásgeir Torfason frá MMS kynnir Minni miðstöð og nýja námsefnissíðu, Þórunn Rakel Gylfadóttir frá Hagþenki veltir fyrir sér mikilvægi þess að horfa til enda strax í upphafi, Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri Iðnú útgáfu, spyr hvaða íslensk námsgögn séu raunverulega til, Guðjón Hreinn Hauksson frá Kennarasambandi Íslands ávarpar salinn frá samningafundi KI í Hveragerði. Að lokum flytur Íris E. Gísladóttir, formaður Þróunarsjóðs námsgagna og formaður IEI, lokaorð.

Sýningin endurspeglar þá miklu grósku sem er í þróun íslensks námsefnis. Þrátt fyrir að reglulega heyrist að lítið sé gefið út af íslensku námsefni gefur sýningin allt aðra mynd því yfir 35 þátttakendur kynna nýjar kennslubækur, rafræn námsgögn, gagnvirkar lausnir, námsöpp, lestrar- og stærðfræðiefni, íslensku sem annað mál, tónmennt, raungreinar, samfélagsgreinar, íslenskt talgervlaefni, námsmatslausnir og fjölbreyttar kennslulausnir fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Að málstofunni standa Samtök iðnaðarins, Samtök menntatæknifyrirtækja, Kennarasamband Íslands, Þróunarsjóður námsgagna, Rannís, Iðnú útgáfa, Félag íslenskra bókaútgefenda, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Menntaskólinn við Hamrahlíð. Hagþenkir og Reykjavíkurborg.

Hér er hægt að nálgast streymið:

https://www.youtube.com/live/K55olCVg4_E