Fréttasafn



5. jún. 2025 Almennar fréttir Mannvirki

Málþing og vinnustofa um byggingar framtíðarinnar

Healthy Buildings Europe stendur fyrir málþingi og vinnustofu miðvikudaginn 11. júní kl. 13-17 í Háskólanum í Reykjavík. Að málþinginu sem ber yfirskriftina Byggjum til framtíðar standa m.a. Samtök iðnaðarins, COWI, Grænni byggð, HMS, IceIAQ, Lota, Efla, Verkís, VSÓ, Verkvist, Límtré-Vírnet og Reykjavíkurborg.

Á málþinginu verður rætt um hvernig við tryggjum að byggingar framtíðarinnar endist, standi undir kröfum um gæði og vistvæna hönnun – og styðji við heilsu og vellíðan þeirra sem í þeim búa og starfa. Við köllum saman fjölbreyttan hóp fagfólks úr hönnun, verkfræði, stjórnsýslu, rannsóknum og framkvæmdum. Markmiðið er skýrt: að efla þverfaglegt samtal um áskoranir og tækifæri við að skapa sjálfbær, græn og heilnæm mannvirki – húsnæði sem ekki einungis standast tímans tönn, heldur stuðla að betri lýðheilsu og félagslegum gæðum í samfélaginu.

Við ræðum meðal annars:

  • Hvernig tryggjum við endingargóðar byggingar sem krefjast minna viðhalds og minni sóunar?
  • Hvernig má byggja með vistvænum efnisvalkostum án þess að fórna gæðum eða innivist?
  • Hvernig verða loftgæði og önnur heilsutengd atriði að lykilforsendum í hönnun og rekstri bygginga?

Við leitum svara við því sem brennur á mörgum: Hver er staðan í dag og hvert viljum við stefna?

Við hvetjum til virkrar þátttöku allra sem koma að skipulagi, byggingu og rekstri mannvirkja – því aðeins með samvinnu náum við árangri.

Á Facebook er hægt að nálgast frekari upplýsingar um dagskrá: https://www.facebook.com/events/1009331127623627

Fjölmörg erindi eru frá kl. 13 til kl. 15.50 þegar vinnustofa á vegum Grænni byggðar hefst. Vinsamlegast skrifið í athugasemdardálk í skráningarhlekknum ef ætlunin er að taka þátt í vinnustofunni.

Hér er hægt að skrá sig á viðburðinn.

Byggjum-betri-framtid-1-