Fréttasafn



13. júl. 2026 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Markaðurinn þarf að kæra því ekkert eftirlit er með innkaupum ríkisins

„En það er alveg rétt að kærumál eru mörg og þau tefja. En hin hliðin á því er að það er ekkert eftirlit með innkaupum hins opinbera. Þannig að markaðurinn sjálfur þarf að fara þessa leið, að kæra,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, í fréttum RÚV þar sem kemur fram að fjármálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp í haust sem tekur meðal annars á kærum vegna opinberra framkvæmda. 

Kærugjaldið ekki of lágt

Sigurður fagnar því að stjórnvöld taki málaflokkinn fastari tökum en tekur ekki undir með ráðherra um að kærugjaldið sé of lágt. „Kærugjaldið var hækkað til muna fyrir ekki svo löngu síðan, þannig að þegar hafa verið tekin skref til að hafa áhrif á kærurnar og fjöldann.“ 

Einfalda ferlið með vandaðri undirbúningi

Þá kemur fram að ástæður fyrir fjölda kæra séu ekki að Íslendingar séu þrasgjarnir heldur að undirbúningi sé oft og tíðum ábótavant og að skortur sé á eftirliti með innkaupum ríkisins sem samtökin hafi lengi kallað eftir. „Hvort sem það er á vegum Samkeppniseftirlitsins eða annarra opinberra aðila. Og til viðbótar við miklu vandaðri undirbúning útboða og innkaupa, ekki síst á vegum sveitarfélaganna, þá væri hægt að einfalda ferlið mjög mikið og losna við talsvert mikið af þessum ágreiningi.“

RÚV kvöldfréttir, 11. júlí 2026.

RÚV, 11. júlí 2026.