Fréttasafn



8. jún. 2026 Almennar fréttir Samtök fyrirtækja í landbúnaði

Matvælaframleiðsla mikilvægur hluti af viðnámsþrótti Evrópu

Á undanförnum árum hefur ítrekað verið gripið til umfangsmikilla „björgunarpakka“ innan ESB til að verja atvinnulíf, orkuöryggi og matvælaframleiðslu gegn margvíslegum áföllum á alþjóðavettvangi. Fyrst kom tímabundið ríkisaðstoðarkerfi vegna Covid-19 og síðan sérstakur stuðningur vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Aðildarríki ESB nýttu þessi úrræði í ríkum mæli til að verja eigin framleiðslugetu, styðja innlend fyrirtæki og tryggja fæðuöryggi. Þetta segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Fyrirtækja í landbúnaði, í grein í Bændablaðinu undir yfirskriftinni Matvælaframleiðsla í skugga síaukins kostnaðar.

Margrét segir að nú hafi framkvæmdastjórn ESB kynnt nýjan björgunarpakka, svokallað METSAF (Middle East crisis Temporary State Aid Framework), vegna þeirrar orkukrísu sem skapast hefur í kjölfar átakanna í Mið-Austurlöndum og lokunar Hormússunds. Gert sé ráð fyrir að átökin muni leiða til verulegra hækkana á orkuverði, flutningskostnaði og ekki síst áburði, sem sé eitt mikilvægasta aðfang landbúnaðar í Evrópu. Hún segir að METSAF hafi þegar tekið gildi og muni vara út þetta ár. Um sé að ræða heimild aðildarríkja til að styrkja atvinnugreinar sem verði fyrir miklum kostnaðarhækkunum, þar á meðal landbúnað. Gert sé ráð fyrir að ríki geti bætt allt að 70% af hækkunum á eldsneytis- og áburðarkostnaði sem rekja megi til átakanna. Í METSAF felist því skýr pólitísk yfirlýsing um að matvælaframleiðsla sé mikilvægur hluti af öryggi og viðnámsþrótti Evrópu.

Vantar skýra afstöðu til þess hvernig eigi að tryggja samkeppnishæfni og fæðuöryggi 

Þá segir Margrét í greininni að kostnaðarþrýstingurinn á landbúnað sé þó ekki aðeins tilkominn vegna tímabundinna stríðsátaka. Regluverk þyngist og auki kostnað – að því er virðist með hverjum deginum. Megi þar nefna hið svokallaða CBAM-kerfi (Carbon Border Adjustment Mechanism) ESB, kolefnisjöfnunarkerfi á innflutning, sem nær meðal annars til áburðarframleiðslu. Hún segir að markmið CBAM sé að koma í veg fyrir að kolefnisfrek framleiðsla flytjist frá Evrópu, en áhrifin verði einnig þau að verð á áburði og öðrum orkufrekum aðföngum muni hækka og að öllum líkindum haldist hátt til lengri tíma.

Í greininni segir Margrét að þar sem Ísland sé ekki aðildarríki ESB hafi það verulegt svigrúm til að móta eigin ríkisstyrkjakerfi og stuðningsaðgerðir á sviði landbúnaðar. Íslenskur landbúnaður sé mjög háður innfluttum aðföngum á borð við áburð, eldsneyti og fóður og hækkanir á heimsmarkaðsverði skili sér því beint inn í rekstur bænda og matvælafyrirtækja hérlendis. Á meðan Evrópuríki markvisst styrki viðnámsþrótt sinna matvælakerfa hafi enn ekki komið fram skýr afstaða íslenskra stjórnvalda til þess hvernig við ætlum að tryggja samkeppnishæfni okkar og fæðuöryggi til lengri tíma.

Skilningur í Noregi á að ef rekstrargrundvöllur bænda veikist sé það ógn við fæðuöryggi

Margrét segir í greininni að íslensk stjórnvöld hafi vissulega gripið til þeirrar aðgerðar að lækka tímabundið virðisaukaskatt á eldsneyti til að milda áhrif hækkandi orkukostnaðar, en hins vegar hefur ekkert enn komið fram um hvernig – eða jafnvel hvort – verja eigi innlenda matvælaframleiðslu gagnvart þeim langtímabreytingum sem nú séu að verða á orku- og aðfangamörkuðum. Á sama tíma hafi Norðmenn tekið mið af hækkandi aðfangakostnaði og lagt aukna áherslu á fæðuöryggi í sínum búvörusamningum og landbúnaðarstefnu. Hún segir að þar ríki skýr skilningur á því að ef rekstrargrundvöllur bænda veikist, þá sé það ógn við fæðuöryggi þjóðarinnar. Það megi sjá skýr merki um það í nýjum búvörusamningum í Noregi fyrir árið 2026 sem kynntir hafi verið 16. maí síðastliðinn.

Stjórnvöld svari hvort matvælaframleiðsla sé venjuleg atvinnugrein eða hluti af þjóðaröryggi

Í niðurlagi greinarinnar segir Margrét að spurningin sem íslensk stjórnvöld þurfi nú að svara sé því hvort matvælaframleiðsla sé einfaldlega venjuleg atvinnugrein eða hluti af þjóðaröryggi landsins. ESB og Noregur hafi þegar svarað þeirri spurningu skýrt. Þar sé verið að byggja upp langtímaviðbrögð við nýjum veruleika þar sem aðföng verða dýrari, orkukostnaður sveiflukenndari og fæðuöryggi sífellt mikilvægara. Ísland megi ekki dragast aftur úr í þeirri umræðu.

Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.

Bændablaðið, 29. maí 2026.