Fréttasafn



26. ágú. 2026 Almennar fréttir Mannvirki

Meistarafélag og rafverktakafélag á Suðurnesjum fagna niðurfellingu byggingarréttargjalda

Meistarafélag byggingamanna á Suðurnesjum og Rafverktakafélag Suðurnesja hafa sent frá sér ályktun þar sem félögin fagna ákvörðun meirihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar um að fella niður byggingarréttargjöld. Félögin líta á ákvörðunina sem mikilvægt skref í þágu húsnæðis- og atvinnuuppbyggingar og hvetja önnur sveitarfélög og stjórnvöld til að taka Reykjanesbæ sér til fyrirmyndar. Hér fer ályktuninn í heild sinni:

ÁLYKTUN

Meistarafélags byggingamanna á Suðurnesjum og Rafverktakafélags Suðurnesja

Fagna ákvörðun meirihluta Reykjanesbæjar um niðurfellingu byggingarréttargjalda

Meistarafélag byggingamanna á Suðurnesjum og Rafverktakafélag Suðurnesja fagna ákvörðun meirihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar um að fella niður byggingarréttargjöld í öllum flokkum - íbúðabyggð, iðnaðarbyggð, verslun og þjónustu og á athafnasvæðum - þannig að gjaldið verði 0 kr./m². Félögin líta á ákvörðunina sem mikilvægt skref í þágu húsnæðis- og atvinnuuppbyggingar og hvetja önnur sveitarfélög og stjórnvöld til að taka Reykjanesbæ sér til fyrirmyndar.

Ákvörðunin er sérstakt fagnaðarefni fyrir aðildarfyrirtæki félaganna, iðnaðarmenn og rafverktaka á svæðinu. Gjaldtaka sveitarfélaga um land allt vegna nýbygginga hefur aukist hratt undanfarin ár og orðið sífellt stærri hluti byggingarkostnaðar. Slík gjaldtaka bitnar ekki aðeins á stórum verktakafyrirtækjum heldur ekki síður á minni byggingaraðilum, iðnaðarmönnum sem ráðast í eigin verkefni og fjölskyldum sem hyggjast byggja sér heimili. Með því að fella gjöldin niður dregur Reykjanesbær úr kostnaði og aðgangshindrunum sem hefðu gert minni aðilum erfiðara fyrir að taka þátt í uppbyggingu og skapar sanngjarnara samkeppnisumhverfi í byggingariðnaði á svæðinu.

Félögin hvetja bæjarstjórn Reykjanesbæjar einnig til að fylgja málinu vel eftir, meðal annars með fyrirhugaðri niðurfellingu samþykktar um innviðagjald, og til að halda áfram á þeirri braut að gera Reykjanesbæ að eftirsóknarverðu sveitarfélagi til uppbyggingar, með nægu lóðaframboði, skýru skipulagi og hóflegum álögum.

Gjaldtaka sveitarfélaga hefur vaxið langt umfram kostnaðarþróun

Félögin hafa um nokkurt skeið haft áhyggjur af sívaxandi gjaldtöku sveitarfélaga vegna byggingarréttar og gatnagerðar en gjaldtakan hefur vaxið langt umfram almenna kostnaðarþróun í greininni, á sama tíma og hagnaðarhlutfall fyrirtækja í húsnæðisuppbyggingu hefur lækkað úr 10,5% árið 2022 í 6,2% árið 2024, undir meðaltali viðskiptahagkerfisins í heild (7,3%).

Félögin telja ákvörðun meirihluta Reykjanesbæjar bera vott um skýran skilning á því samhengi að sívaxandi gjaldtaka hins opinbera á húsnæðisuppbyggingu hefur hækkað byggingarkostnað, sem aftur ýtir undir verðbólgu og hærri vexti, og gerir bæði uppbyggingu og húsnæðiskaup dýrari fyrir almenning. Með því að lækka álögur í stað þess að hækka sýnir Reykjanesbær gott fordæmi sem félögin vona að fleiri sveitarfélög á landinu fylgi.

Ákall til stjórnvalda

Félögin skora jafnframt á stjórnvöld að taka ákvörðun Reykjanesbæjar sér til fyrirmyndar og stíga skref sem greiða fyrir íbúða- og atvinnuuppbyggingu, í stað þess að þyngja hana. Í því samhengi ítreka félögin sérstaka andstöðu sína við áform stjórnvalda um að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á byggingarstað, mögulega úr 35% niður í 0%, og skora á stjórnvöld að falla frá þeim áformum með öllu.

Fyrirhuguð skattahækkun stjórnvalda mun auka byggingarkostnað, draga úr framboði íbúða og grafa undan þeim árangri sem næst með ákvörðunum á borð við þá sem Reykjanesbær hefur nú tekið.

Grétar Ingólfur Guðlaugsson, formaður Meistarafélags byggingamanna á Suðurnesjum

Hjörleifur Stefánsson, formaður Rafverktakafélags Suðurnesja