Meistarafélags Suðurlands og Félags rafverktaka á Suðurlandi fagna lækkun byggingarréttargjalda
Meistarafélags Suðurlands og Félags rafverktaka á Suðurlandi fagna ákvörðun Sveitarfélagsins Árborgar um að lækka byggingarréttargjöld af íbúðarlóðum og fella niður gjöld af atvinnulóðum. Aðgerðirnar eru mikilvægt skref í þá átt að bæta rekstrarumhverfi byggingariðnaðarins, greiða fyrir aukinni uppbyggingu og skapa betri skilyrði fyrir fjárfestingu í sveitarfélaginu. Formenn félaganna sem skrifa undir ályktunina telja mikilvægt að gjaldtaka sveitarfélaga vegna uppbyggingar sé hófleg, gagnsæ og fyrirsjáanleg. Há gjöld við upphaf framkvæmda geta dregið úr uppbyggingu, aukið fjármagnskostnað og að lokum skilað sér í hærra verði húsnæðis og atvinnuhúsnæðis.
Hér fer ályktuninn í heild sinni:
ÁLYKTUN
Meistarafélags Suðurlands og Félags rafverktaka á Suðurlandi
Lægri gjöld lækka kostnað við uppbyggingu
Fagna ákvörðun Sveitarfélagsins Árborgar um að lækka byggingarréttargjöld af íbúðarlóðum og fella niður gjöld af atvinnulóðum
Meistarafélag Suðurlands og Félag rafverktaka á Suðurlandi fagna ákvörðun Sveitarfélagsins Árborgar um að lækka byggingarréttargjöld af íbúðarlóðum og fella niður gjöld af atvinnulóðum. Aðgerðirnar eru mikilvægt skref í þá átt að bæta rekstrarumhverfi byggingariðnaðarins, greiða fyrir aukinni uppbyggingu og skapa betri skilyrði fyrir fjárfestingu í sveitarfélaginu.
Jákvætt skref fyrir uppbyggingu
Mikil þörf er á nýju húsnæði og því skiptir máli að sveitarfélög leiti leiða til að draga úr kostnaði við uppbyggingu. Lækkun byggingarréttargjalda af íbúðarlóðum um 30–40%, eftir byggðakjörnum, er jákvætt framlag í þá átt. Þá er sérstaklega ánægjulegt að gjöld af atvinnulóðum verði felld niður, enda getur sú breyting aukið hvata fyrirtækja til fjárfestinga og atvinnuuppbyggingar í Árborg.
Formenn félaganna telja mikilvægt að gjaldtaka sveitarfélaga vegna uppbyggingar sé hófleg, gagnsæ og fyrirsjáanleg. Há gjöld við upphaf framkvæmda geta dregið úr uppbyggingu, aukið fjármagnskostnað og að lokum skilað sér í hærra verði húsnæðis og atvinnuhúsnæðis.
Ákvörðun Árborgar er því mikilvægt fordæmi um hvernig sveitarfélög geta með markvissum breytingum á gjaldtöku skapað aukið svigrúm til framkvæmda, fjárfestinga og atvinnusköpunar. Félögin hvetja önnur sveitarfélög til að skoða með sambærilegum hætti hvernig draga megi úr álögum og hindrunum sem standa í vegi fyrir uppbyggingu.
Stjórnvöld vinni í sömu átt
Jafnframt skora formenn félaganna á stjórnvöld að fella ekki niður endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna á verkstað. Mikilvægt er að aðgerðir ríkis og sveitarfélaga vinni í sömu átt og styðji við framkvæmdir, viðhald og uppbyggingu fremur en að auka kostnað.
Öflugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi byggingar- og mannvirkjageirans er forsenda áframhaldandi uppbyggingar. Aðgerðir Árborgar eru jákvætt skref í þá átt og félögin hvetja bæði ríki og sveitarfélög til að leggja áherslu á að draga úr álögum og bæta skilyrði fyrirtækja og heimila til framkvæmda.
Valdimar Bjarnason, formaður Meistarafélags Suðurland
Magnús Gíslason, formaður Félags rafverktaka á Suðurlandi

