Menntadagur atvinnulífsins
Menntadagur atvinnulífsins fer fram í Norðurljósum í Hörpu miðvikudaginn 14. febrúar nk. kl. 9.00-10.30. Yfirskrift menntadagsins í ár er Göngum í takt: Er menntakerfið að halda í við þarfir atvinnulífsins?
Á fundinum verða kynntar uppfærðar niðurstöður könnunar Gallup á eftirspurn eftir vinnuafli þvert á atvinnugreinar í því augnamiði að skilgreina nauðsynlegar aðgerðir svo vinnuaflsskortur hamli ekki vexti í atvinnulífinu. Rödd atvinnulífsins fær að heyrast sem fyrr og ráðherrar málaflokksins mæta í umræður þar sem menntakerfið er krufið með tilliti til færniþarfar á vinnumarkaði. Þá eru hin árlegu menntaverðlaun atvinnulífsins veitt í tveimur flokkum af Forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni.
Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.
Hér er hægt að skrá sig.
Hér er hægt að nálgast streymi fundarins:
https://vimeo.com/event/4084326