Menntadagur atvinnulífsins í beinu streymi
Menntadagur atvinnulífsins fer fram í dag á Hótel Nordica Reykjavík kl. 13.30-16.00. Yfirskrift dagsins í ár er Framtíðin kallar. Er menntakerfið að hlusta?
Menntadagur atvinnulífsins er vettvangur þar sem fyrirtæki, menntastofnanir, stjórnvöld og aðrir hagaðilar koma saman til að ræða hvernig menntun getur betur mætt raunverulegum þörfum framtíðarinnar.
Dagskrá Menntadags atvinnulífsins verður fjölbreytt og áhugaverð. Sérstaklega er sjónum beint að samspili og samvinnu atvinnulífs og skóla. Þátttakendur koma víða að úr atvinnulífi, menntakerfi, stjórnmálum og stjórnsýslu.
Þá eru hin árlegu menntaverðlaun atvinnulífsins veitt fyrir menntafyrirtæki ársins 2026 og menntasprota ársins 2026. Krónan, BM Vallá og AÞ-þrif eru tilnefnd sem menntafyrirtæki ársins 2026.
Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.
Á vef SA er hægt að nálgast beint streymi.
Hér er hægt að nálgast beint streymi frá Menntadegi atvinnulífsins:
https://vimeo.com/event/5719258/1396fcd8e7
mbl.is, 11. febrúar 2026.
Vísir, 11. febrúar 2026.
vb.is, 11. febrúar 2026.

