Mikil gróska í Félagi húsgagnabólstrara
Aðalfundur Félags húsgagnabólstrara fór fram fimmtudaginn 15. maí í Húsi atvinnulífsins. Fundarsókn var einstök en allir félagsmenn mættu og tóku virkan þátt í umræðum og ákvarðanatöku.
Undanfarna mánuði hefur fjölgað verulega í félaginu sem speglar þá miklu grósku sem ríkir í greininni og þann vaxandi fjölda faglærðra húsgagnabólstrara sem hefur bæst í hópinn á síðustu árum. Á fundinum kom fram að það væri ánægjulegt að þessi uppsveifla skuli eiga sér stað nú þegar félagið stefnir á að fagna 100 ára afmæli sínu árið 2028.
Stjórn félagsins var endurkjörin á aðalfundinum en í stjórn sitja Berglind Hafsteinsdóttir, formaður, Ásdís Birgisdóttir, ritari, og Heiða Harðardóttir, gjaldkeri.
Stjórn Félags húsgagnabólstrara, Ásdís Birgisdóttir, ritari, Berglind Hafsteinsdóttir, formaður og Heiða Harðardóttir, gjaldkeri.
Húsgagnabólstrarar fjölmenntu á aðalfund félagsins.